Námskeiðsgjald er 3.000,- kr Til þess að skráning teljist gild þarf að fylgja millifærsla! Reikningur 515-26-680481, kt. 680481-0249, setja nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected]! Forgang á námskeiðið hafa þau sem skráð eru á næstu sýningu HRFÍ þann 26.11.22. ATH! Sendur verður út staðfestingarpóstur þegar skráning er gild með nánari upplýsingum. Ekki er hægt að staðfesta skráningu fyrr en nær dregur. Skráning telst því ekki fullgild fyrr en staðfesting frá Ungmennadeild berst. Námskeiðstími er í kringum 17-21 og mun tímum verða úthlutað eftir skráningu, ekki er hægt að vera með séróskir ef skipta þarf hópnum sérstaklega upp. Námskeiðið fer fram í reiðhöll og þurfu þáttakendur að vera vel klæddir. Skráning fer fram hér fyrir neðan: Stakar sýningarþjálfanir í boði í nóvember - athugið vel tímasetningar! Tímasetningar eru eftirfarandi: Föstudagur 11. nóvember
Skráning hér fyrir neðan - ATHUGIÐ FULLT Í YNGRI FLOKK! Staðsetning: Reiðhöllin C-TRÖÐ Víðidal - Ýtið HÉR fyrir link á staðsetningu. Við þurfum við að huga að því að reiðhöllin er staðsett inní miðju hesthúsahverfi og biðjum við ykkur um að sýna tillitssemi við hestamenn í hesthúsunum í kring. Þátttökugjald: 1.000 kr skiptið, athugið að hægt er að skrá sig á stök skipti. Gjaldið er staðfestingagjald og ekki hægt að fá endurgreitt eða eiga inni. Til þess að skráning teljist gild þarf að fylgja millifærsla! Reikningur 515-26-680481, kt. 680481-0249, setja nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected]! ATH! Börn á 9unda aldursári mega taka þátt í þjálfunum deildarinnar og skrá sig í yngri flokk Mjög mikilvægt er að börnin mæti með hunda sem þau hafa stjórn á á námskeiðið og hafa náð amk 9 mánaða aldri. ATHUGIÐ - FULLT ER Á NÁMSKEIÐIÐ - HÆGT ER AÐ SKRÁ Á BIÐLISTA Á NETFANGIÐ OKKAR: [email protected]
Þá fer að líða að næsta námskeiði. Í samstarfi við Ungmennadeild mun Erna Sigríður Ómarsdóttir, dómari á síðustu sýningu, halda námskeið fyrir unga sýnendur. Erna er sjálf fyrrum ungur sýnandi með mikla reynslu og þekkingu til að miðla til áhugsamra ungra sýnenda. TAKMARKAÐ PLÁSS! Námskeiðið er tvö skipti: Laugardagur 22. október kl. 13-14 Sunnudagur 23. október kl. 13-14 Áætlaður námskeiðstími er ein klst. hvorn daginn. Athugið að ef skráning er mikil gætum við þurft að skipta hópnum í tvennt og yrði næsti hópur þá kl. 14-15. Staðsetning: Blíðubakkahúsið Þátttökugjald: 6.000 kr. Skráningafrestur er til fimmtudagsins 20. október eða þar til námskeiðið fyllist. Til þess að skráning teljist gild þarf að fylgja millifærsla! Reikningur 515-26-680481, kt. 680481-0249, setja nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected]! Þar sem takmarkaður fjöldi kemst á námskeiðið verður farið eftir greiðslum þegar tekið er á móti skráningunum. Mikilvægt er að börnin mæti með hunda sem þau hafa stjórn á á námskeiðið og hafa náð amk. 9 mánaða aldri!! Dagur ungmennadeildar HRFÍ og Royal Canin verður haldinn hátíðlegur þann 2. október nk. í húsnæði Dýrheima að Víkurhvarfi 5.
Á þessum skemmtilega degi munu börn á aldrinum 3-9 ára fá tækifæri til að spreyta sig með fjórfætta vini sína auk þess sem keppt verður í flokkum ungra sýnenda og eldri sýnenda. Í barnaflokkum munu allir þátttakendur fá þátttökuverðlaun og verður ekki raðað í verðlaunasæti. Flokkarnir eru eftirfarandi: Börn 3-5 ára – Dómari: Fanney Rún Ólafsdóttir Börn 6-9 ára – Dómari: Fanney Rún Ólafsdóttir Yngri flokkur sýnenda 10-12 ára – Dómari: Brynja Kristín Magnúsdóttir Eldri flokkur sýnenda 13-17 ára – Dómari: Brynja Kristín Magnúsdóttir Fullorðsinflokkur 18-34 ára – Dómari: Birta Dröfn Valsdóttir Fullorðinsflokkur 35 ára og eldri – Dómari: Birta Dröfn Valsdóttir Ath. aldursárið gildir í þeim flokkum sem í boði eru. Þátttökugjald í öllum flokkum er 2.500 kr. Skráningarfrestur fyrir daginn er liðinn. Það var til og með 25.september. Þetta er frábær leið til að kynna börn fyrir sýningum og einnig góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Tímasetningar verða auglýstar um leið og fjöldi skráðra þátttakenda liggur fyrir. Vonumst til að sem flestir taki þátt í deginum með okkur! Kveðja, stjórn Ungmennadeildar HRFÍ. Stakar sýningarþjálfanir í boði í júlí! Þriðjudaginn 5 júlí og 12 júlí verða sýningarþjálfanir í boði fyrir unga sýnendur á aldrinum 9-17 ára* (aldursárið gildir). Skráning hér fyrir neðan Staðsetning: Dýrheimar, VÍKURHVARF 5 (ATH ný staðsetning Dýrheima!)
- ATH mæta klædd eftir veðri. Möguleiki á að við verðum úti og/eða inni. Þátttökugjald: 1.000 kr skiptið Til þess að skráning teljist gild þarf að fylgja millifærsla! Reikningur 515-26-680481, kt. 680481-0249, setja nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected]! ATH!!! Börn á 9unda aldursári mega taka þátt í námskeiðinu og skrá sig í yngri flokk Yngri flokkur: 10-12 ára (9-12 ára - árið gildir) Eldri flokkur: 13-17 ára (árið gildir) Mikilvægt er að börnin mæti með hunda sem þau hafa stjórn á á námskeiðið og hafa náð amk 9 mánaða aldri. Í samstarfi við Ungmennadeild munu tveir frábærir þjálfarar sjá um að halda námskeið fyrir unga sýnendur. Bæði byrjendur og vana.
TAKMARKAÐ PLÁSS! - ATH - fullt er í byrjendahópinn! Birta Dröfn mun sjá um námskeiðið fyrir byrjendur og Hilda Björk mun sjá um námskeiðið fyrir vana. Námskeiðið er þrjú skipti, einn fyrirlestur og tvö verkleg skipti: (ATH tímasetningar) Fimmtudagurinn 26. maí kl 18-19 Laugardaginn 28. maí - sjá tímasetningar á auglýsingu fyrir ofan. Sunnudaginn 29.maí - sjá tímasetningar á auglýsingu fyrir ofan. Staðsetning: Dýrheimar, Ögurhvarfi 8 Þátttökugjald: 7.000kr Til þess að skráning teljist gild þarf að fylgja millifærsla! Reikningur 515-26-680481, kt. 680481-0249, setja nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected]! ATH!!! Börn á 9unda aldursári mega taka þátt í námskeiðinu og skrá sig í yngri flokk - óvanir. Yngri flokkur: 10-12 ára (9-12 ára - árið gildir) Eldri flokkur: 13-17 ára (árið gildir) Mikilvægt er að börnin mæti með hunda sem þau hafa stjórn á á námskeiðið og hafa náð amk 9 mánaða aldri. Verið er að vinna í dagskrá fyrir næstu mánuði en munum við byrja á að halda sýnendanámskeið fyrir unga sýnendur nú í byrjun apríl!
TAKMARKAÐ PLÁSS!! Námskeiðið er þrjú verkleg skipti: (ATH tímasetningar) Þriðjudaginn 5. apríl kl 18-19 Fimmudag 7. apríl kl 18:30-19:30 Þriðjudag 12. apríl kl 18-19 Staðsetning: Blíðubakkahúsið - í hesthúsahverfi Mosfellsbæjar Þáttökugjald: 6.000kr Til þess að skráning teljist gild þarf að fylgja millifærsla! Reikningur 515-26-680481, kt. 680481-0249, setja nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected]! Börn á 9unda aldursári mega taka þátt í námskeiðinu og skrá sig í yngri flokk - óvanir. Yngri flokkur: 10-12 ára (9-12 ára - árið gildir) Eldri flokkur: 13-17 ára (árið gildir) Mikilvægt er að börnin mæti með hunda sem þau hafa stjórn á á námskeiðið og hafa náð amk 9 mánaða aldri. Ungmennadeild ætlar að bjóða uppá námskeið fyrir unga sýnendur nú í febrúar, námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Námskeiðið verður haldið dagana 19. og 20. febrúar kl. 13 í Reiðhöllinni C-tröð. Námskeiðsverðið er 5.000 kr. Við hverjum alla unga sýnendur 9-17 ára (ártalið gildir) til að skrá sig á námskeiðið! Millifæra skal námskeiðsgjaldið á reikning deildarinnar hjá HRFÍ: Reikningur 515-26-680481, kt. 680481-0249, setja nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected]! ATH: Skráning telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist og takmarkað pláss er á námskeiðið FULLT ER Á NÁMSKEIÐIÐ - SKRÁNING Á BIÐLISTA ER Á [email protected]
Til allra sem tókuð þátt í þessum frábæra degi með okkur - TAKK! Fjölmennt var í reiðhöll Fáks 23. október síðastliðinn, tilefnið var að fagna 20 ára afmælishátíð deildarinnar með degi Ungmennadeildar og Royal Canin styrktaraðila okkar. Skráning var frábær en mikið var um að vera þessa sömu helgi. Keppt var nokkrum flokkum, barnaflokkum (3-5 ára, 6-9 ára), ungum sýnendum (10-12 ára, 13-17 ára) og svo í Match show þar sem keppt var um besta parið. Dómarar voru Snærún Ynja, Anja Björg og Valdís V. - þökkum þeim kærlega fyrir að taka þátt með okkur. Landslið ungra sýnenda sá til þess að bjóða upp á ýmis góðgæti og happdrætti til styrktar liðsins sem heldur til Danmerkur nú í nóvember! Óskum við þeim góðs gengis! Úrslit: Barnaflokkur: allir sigurvegarar! Yngri flokkur ungra sýnenda: 1. Melkorka Ingibjörg Ástþórsdóttir með Australian Shepherd 2. Emilý Björk Kristjánsdóttir með Briard 3. Margrét Anna Lapas með Cavalier 4. Aníta Hlín Kristinsdóttir með Coton de Tulear Eldri flokkur ungra sýnenda: 1. Hrönn Valgeirsdóttir með Pudelpointer 2. Freyja Guðmundsdóttir með Afghan Hound 3. Eyrún Eva Guðjónsdóttir með Cavalier 4. Ágústína Líf Siljudóttir með Íslenskan Fjárhund Match show BIS 1. Karen Ösp Guðbjartsdóttir með PBGV úr opnum flokki 2. Þorbjörg Ásta Leifsdóttir með Íslenskan Fjárhund úr ungliða/unghunda flokki 3. Helga Kolbeinsdóttir með Tibetan Spaniel úr öldungaflokki 4. Hrafnhildur Björk Eggertsdóttir með Bearded Collie úr hvolpaflokki Til hamingju öll með daginn! Fleiri myndir frá deginum má finna á facebook síðu deildarinnar! Ungmennadeild ætlar að bjóða uppá námskeið fyrir unga sýnendur í nóvember, námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Verklegi hluti námskeiðsins verður haldinn eftirfarandi daga, kl. 19-20 í reiðhöllinni í Víðidal: Mánudaginn 1. nóvember Miðvikudaginn 3. nóvember Mánudaginn 8. nóvember Fræðslukvöld verður mánudaginn 15. nóvember, nánari upplýsingar þegar nær dregur. Námskeiðsverðið er 6.000 kr. og innifalið í því eru þessi þrjú verklegu skipti ásamt fræðslukvöldi og pizza veislu þar. Taka skal fram að allur ágóði af námskeiðinu rennur beint til deildarinnar og er því fjáröflun fyrir starf deildarinnar. Við hverjum alla unga sýnendur 9-17 ára (ártalið gildir) til að skrá sig á námskeiðið! Millifæra skal námskeiðsgjaldið á reikning deildarinnar hjá HRFÍ: Reikningur 515-26-680481, kt. 680481-0249, setja nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected]! ATH: Skráning telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist.t. sath - ATH! - FULLT ER Á NÁMSKEIÐIÐ! |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|