Keppni ungra sýnenda á septembersýningu HRFÍ fór fram á föstudag 18. september sl. kl. 18 í TM-reiðhöllinni í Víðidal. Að þessu sinni voru 24 ungmenni skráð til keppni og dómari varSvava Arnórsdóttir frá Íslandi. Svava valdi fjóra í verðlaunasæti í yngri flokki á föstudagskvöldinu en valdi fjóra í eldri flokki sem mættu og kepptu til úrslita á laugardeginum. Úrslit voru eftirfarandi: Yngri flokkur: 1. sæti - Elena Mist Theodórsdóttir með silky terrier - 40 stig 2. sæti - Kolbrún Jara Birgisdóttir með íslenskan fjárhund - 30 stig 3. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með afghan hound - 20 stig 4. sæti - Erlen Inga Guðmundsdóttir með papillon - 10 stig Eldri flokkur: 1. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með enskan springer spaniel - 40 stig 2. sæti - Berglind Gunnarsdóttir með siberian husky - 30 stig 3. sæti - Margrét Hauksdóttir með afghan hound - 20 stig 4. sæti - Ylfa Dögg Ástþórsdóttir með papillon - 10 stig Fleiri myndir má sjá HÉR! Hafdís Jóna Þórarinsdóttir náði þeim frábæra árangri að verða í 2. sæti í Evrópukeppni ungra sýnenda á Evrópusýningunni í Noregi í byrjun september. Hafdís sýndi flat-coated retriever og tók þátt í tveimur undankeppnum sem fram fóru fyrsta og annan dag sýningarinnar. Fyrri daginn var hún valin í undanúrslit en í seinni keppninni var hún valin, ásamt tveimur öðrum sýnendum, til að taka þátt í aðalkeppninni sem fór fram á síðasta degi sýningarinnar. Þess má geta að hátt í 50 sýnendur voru skráðir til leiks hvorn daginn. Í lokakeppninni tóku fulltrúar fjölmargra Evrópulanda þátt ásamt þeim sex sýnendum sem komust áfram úr undankeppnunum. Hafdís gerði sér lítið fyrir og varð í 2. sæti og er óhætt að segja að samkeppnin var ansi hörð! Dómari keppninnar var atvinnusýnandinn, Angela Lloyd frá Bandaríkjunum. Hún er einn þekktasti sýnandi Bandaríkjanna og átti glæsilegan feril sem ungur sýnandi á árum áður en þess má geta að hún sigraði alþjóðlega keppni ungra sýnenda á Crufts 1998. Við óskum Hafdísi Jónu innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur! |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|