CRUFTS 2024
Helgina 7.-11. mars fór fram ein stærsta sýning í heimi, Crufts, sem haldinn er í Birmingham ár hver.
Freyja Guðmundsdóttir, stigahæsti ungi sýnandi í eldri flokki árið 2023, var fulltrúi okkar í alþjóðlegri keppni ungra sýnenda sem fór fram á laugardeginum. Saman komu fulltrúar frá 36 löndum. Dómari keppninnar var Roni Doedijns frá Hollandi.
Freyja með Tíbetan Spaniel átti stóra hringinn! Gerði sér lítið fyrir og fór alla leið í 10 keppenda úrslit og endaði svo í 3 sætinu! Erum hrikalega stolt af henni Freyju okkar!
Við óskum Freyju innilega til hamingju með árangurinn!!

CRUFTS 2023
Helgina 9.-12 mars fór fram ein stærsta sýning í heimi, Crufts, sem haldinn er í Birmingham ár hver.
Hrönn Valgeirsdóttir, stigahæsti ungi sýnandi í eldri flokki árið 2022, var fulltrúi okkar í alþjóðlegri keppni ungra sýnenda sem fór fram á laugardeginum. Saman komu fulltrúar frá 33 löndum. Dómari keppninnar var Geoff Corish frá Bretlandi.
Hrönn fékk Bracco Italiano hundinn, Fudge. Þau stóðu sig með prýði og voru félaginu til sóma.

CRUFTS 2019
Helgina 7.-10. mars fór fram ein stærsta sýning í heimi, Crufts, sem haldin er í Birmingham ár hvert.
Vaka Víðisdóttir, stigahæsti ungi sýnandi í eldri flokki árið 2018, var fulltrúi okkar í alþjóðlegri keppni ungra sýnenda sem fór fram á laugardeginum. Saman komu fulltrúar frá 41 landi. Dómari keppninnnar var Jason Hoke frá Bandaríkjunum.
Vaka fékk enska pointer rakkann Wilberg sem hún fékk að æfa sig með í klukkutíma fyrir keppni. Í skiptum fékk hún samoyed. Því miður komu upp erfiðar aðstæður með rakkann Wilberg en var Vaka heppin að poodle hundurinn Pippin var til staðar og fékk hún að fara með hann inn í úrslitin.
Vaka stóð sig frábærlega og var félaginu til sóma.

Crufts 2018
Vaka Víðisdóttir, stigahæsti ungi sýnandi ársins 2017, var fulltrúi okkar á Crufts sem var haldin helgina 8.-11. mars síðastliðinn. Crufts er stærsta hundsýning í heimi og er haldin í Birmingham ár hvert.
Í ár voru 42 keppendur skráðir frá jafn mörgum löndum í alþjóðlega keppni ungra sýnenda sem fór fram laugardagsmorguninn 10. mars. Dómari keppninnar var Yiannis Vlachos frá Grikklandi.
Vaka sýndi australian shepherd-rakkann Colby en í skiptum fékk hún dobermann-tíkina Elsu.
Vaka stóð sig frábærlega og var HRFÍ, landi og þjóð til sóma.

Crufts 2017
Hafdís Jóna Þórarinsdóttir, stigahæsti ungi sýnandinn árið 2016, var fulltrúi okkar á Crufts sem haldin var 9.-12. mars síðastliðinn, en Crufts er stærsta hundasýning í heimi og er haldin í Birmingham í Bretlandi ár hvert.
Í ár voru 45 keppendur skráðir frá jafn mörgum löndum í alþjóðlegu keppni ungra sýnenda sem fór fram laugardagsmorguninn 11. mars.
Dómari keppninnar var Vesa Lehtonen frá Finnlandi að þessu sinni.
Hafdís Jóna fékk 15 mánaða gamla beagle rakkann Sam til þess að sýna en hún hitti hann klukkutíma fyrir keppni en í skiptum fékk hún tíu mánaða gömlu english pointer tíkina Babs.
Hafdís stóð sig frábærlega og var landi og þjóð til sóma en þetta var síðasta sýning Hafdísar sem ungur sýnandi!
Crufts 2016
Hafdís Jóna Þórarinsdóttir, stigahæsti ungi sýnandinn eftir árið 2015, var fulltrúi okkar á Crufts sem haldin var 10.-13. mars síðastliðinn, en Crufts er stærsta hundasýning í heima og er haldin í Birmingham í Bretlandi á hverju ári.
Í ár voru 45 keppendur skráðir frá jafn mörgum löndum í alþjóðlega keppni ungra sýnenda sem fór fram laugardagsmorguninn 12. mars. Dómari var Barbara Müller frá Sviss að þessu sinni. Hafdís Jóna fékk ensku springer spaniel tíkina Bridget til að sýna en hún hitti hana klukkutíma fyrir keppnina en í skiptum fékk hún shiba inu rakka.
Hafdís og Bridget náðu þeim frábæra árangri að komast í 10 keppenda úrslit!
Við óskum Hafdísi innilega til hamingju með þennan árangur, hún var landi og þjóð til sóma!

Crufts 2015
Fulltrúi okkar á Crufts að þessu sinni var Helga Þöll Guðjónsdóttir sem var stigahæsti sýnandinn í eldri flokki eftir sýningarárið 2014. Crufts er stærsta hundasýning í heimi og er haldin í Birmingham í Bretlandi og stóð að þessu sinni yfir dagana 5.-8. mars. Alþjóðleg keppni ungra sýnenda fór fram á laugardagsmorguninn og voru keppendur 45 talsins frá jafn mörgum löndum, sem er metskráning líkt og árið 2014. Dómarinn í ár var Elina Haapaniemi frá Finlandi. Helga Þöll keppti með snögghærða vorsteh rakkann Morgan, sem hún hitti klukkutíma fyrir keppni, og fékk shiba inu sem skipti hund.
Helga og Morgan náðu þeim glæsilega árangri að komast í 10 keppenda úrslit!
Við óskum Helgu Þöll innilega til hamingju með þennan frábæra árangur en þetta var hennar síðasta keppni sem ungur sýnandi.

Crufts 2014
Crufts, stærsta hundasýning í heimi, var haldin 6.-9. mars sl. Alþjóðleg keppni ungra sýnenda var laugardaginn 8. mars þar sem Theodóra Róbertsdóttir, stigahæsti ungi sýnandinn eldri flokki, var fulltrúi okkar. Að þessu sinni var met skráning en 45 keppendur frá jafn mörgum löndum kepptu fyrir hönd sinna landa. Dómarinn í ár var Dr. Tamas Jakkel frá Ungverjalandi. Theodóra sýndi Samoyed rakkann Norsk og komust þau í top 10 sýnenda úrslit. Við óskum Theodóra til hamingju með frábæran árangur á Crufts en þetta var einnig seinasta sýning hennar sem ungur sýnandi.
Crufts 2013
Brynja Kristín Magnúsdóttir keppti fyrir hönd Íslands í keppni ungra sýnenda á Crufts laugardaginn 9. mars sl. Fulltrúarnir voru 38 frá jafn mörgum löndum sem kepptu í International Junior Handling competition. Dómari keppinnar var
Mr. Bill McFadden frá Bandaríkjunum.
Brynja sýndi snögghærða vorsteh hundinn Twix og varð okkur til sóma en hún komst í 10 keppanda úrslit! Frábær árangur hjá henni og óskum við henni innilega til hamingju með þetta!!

Crufts 2012
Í ár keppti Elín Rós Hauksdóttir, stigahæsti ungi sýnandi ársins 2011,
fyrir hönd Íslands á Crufts, sem er stærsta hundasýning í heimi sem
er ár hvert haldin í Bretlandi. Elín fékk hund af tegundinni
Australian Shepherd og stóð sig með prýði. Elín fékk Enskan Pointer
í skiptum og gekk mjög vel með hann. Elín komst ekki í úrslit en
þrátt fyrir það var hún Íslandi til sóma.