Þann 26. október var Dagur Ungmennadeildar haldinn hátíðlegur, en við reynum að halda upp á þennan dag að minnsta kosti einu sinni á ári, enda ávallt vel sóttur og orðinn ein helsta fjáröflun deildarinnar. Að þessu sinni bættum við við nýrri nýjung sem var Match Show en þá voru hundar dæmdir en ekki sýnendur.
Fólk á öllum aldri mætti og tók þátt, bæði í sýnendakeppnum og á match showinu. Frábær dagur í alla staði. Úrslit voru eftirfarandi: Í barnaflokkunum fóru allir heim sem sigurvegarar! Yngri flokkur, ungir sýnendur: 1. sæti - Arna María Theodórsdóttir 2. sæti - Matthildur Lóa Baldursdóttir 3. sæti - Aníta Sólveig Maríudóttir 4. sæti - Styrmir Jarl Hallgrímsson Eldri flokkur, ungir sýnendur: 1. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir 2. sæti - Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir 3. sæti - Hrönn Valgeirsdóttir 4. sæti - Snærún Ynja Hallgrímsdóttir Fullorðinsflokkur: 1. sæti - Aníta Lára Ólafsdóttir 2. sæti - Valdís Vignisdóttir 3. sæti - Stefanía Sunna Ragnarsdóttir 4. sæti - Anna Þórðardóttir Bachman Match Show: BEST IN SHOW - Henrikville Leave It To Me, Pekingese, fullorðinsflokkur BIS-2 - Leiru Eva, íslenskur fjárhundur, öldungaflokkur BIS-3 - Tulta Ja Lunta Minvera McGonagall, Finnish lapphund, hvolpaflokkur BIS-4 - Greypix’s A Good girl underneath, dverg schnauzer p/s, ungliða/unghunda flokkur BIS-5 - Kolskeggs Hugljúfi Kasper, dverg schnauzer, free style Ungmennadeild HRFÍ stóð fyrir byrjendanámskeiði fyrir unga sýnendur helgina 5.-6 október. Þær Auður Sif Sigurgeirsdóttir og Ágústa Pétursdóttir voru leiðbeinendur námskeiðsins en þær eru báðir farsælir fyrrum ungir sýnendur og hafa verið viðloðandi í sportinu í langan tíma. Við þökkum þeim innilega fyrir!
Það var frábær skráning á námskeiðið en það þurfti fljótt að bæta við öðrum hópi til að gera pláss fyrir enn fleiri, en 22 voru skráðir! Við bindum miklar vonir við nýju meðlimi deildarinnar og vonust til að sjá þau aftur á sýningum HRFÍ! |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|