Stefanía Stella var þriðji stigahæsti sýnandi ársins 2018. Þar sem Heimssýningin er haldin í Kína þetta árið fer 2. stigahæsti sýnandi ársins á Evrópusýninguna og fékk þriðji stigahæsti sýnandi ársins styrk til að fara á sýningu að eigin vali og keppa í ungum sýnendum.
Stella fór á sýningu í Póllandi, Pruszkow National Dog Show, og keppti þar tvisvar sinnum í ungum sýnendum með frábærum árangri! Á laugardeginum sýndi hún afghan hound og uppskar 4. sæti undir dómaranum Joanna Szczepanska-Korpetta. Á sunnudeginum sýndi Stella enskan springer spaniel og gerði enn betur og náði 2. sæti undir dómaranum Viva Maria Soleckyj Szpunar! Við óskum Stefaníu Stellu innilega til hamingju með frábæran árangur! Ársfundur Ungmennadeildar HRFÍ fór fram þann 19. mars á skrifstofu HRFÍ að Síðumúla. Góð mæting var á fundinn.
Auður Sif Sigurgeirsdóttir var skipaður fundastjóri og las Ágústa Pétursdóttir upp skýrsluna. Ársskýrsla deildarinnar var samþykkt eftir upplestur af öllum viðstöddum. Að þessu sinni voru tvö sæti laus til tveggja ára og eitt sæti til eins árs. Auður Sif Sigurgeirsdóttir, Ágústa Pétursdóttir og Vaka Víðisdóttir gengu úr stjórn, en munu að sjálfsögðu verða nýrri stjórn innan handar. Inn í stjórn voru kosnar þær Anna Dís Arnarsdóttir til tveggja ára, Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir til eins árs og Stefanía Stella Baldursdóttir til tveggja ára. Eftir þessi kjör sitja í stjórn þær: Anna Dís Arnarsdóttir - gjaldkeri Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir - meðstjórnandi Hafdís Jóna Þórarinsdóttir - formaður Stefanía Stella Baldursdóttir - ritari Lovísa Helenudóttir - meðstjórnandi Að loknu kjöri voru ýmis málefni rædd. Þar á meðal var rætt um keppni ungra sýnenda sem nú fer fram á sama tíma og almenn dómgæsla inní hring. Kom tillaga þar sem nokkrar sýningar HRFÍ eru tvöfaldar hvort hægt væri að hafa keppni ungra sýnenda einnig tvöfaldar s.s. sitthvorn daginn. Ný stjórn tók vel í þessa hugmynd sem þarf að sjálfsögðu að skoða og útfæra í samræmi við sýningarstjórn. Finna má ársskýrslu 2018-2019 í heildsinni undir 'Skýrslur og fundargerðir'. Helgina 7.-10. mars fór fram ein stærsta sýning í heimi, Crufts, sem haldin er í Birmingham ár hvert.
Vaka Víðisdóttir, stigahæsti ungi sýnandi í eldri flokki árið 2018, var fulltrúi okkar í alþjóðlegri keppni ungra sýnenda sem fór fram á laugardeginum. Saman komu fulltrúar frá 41 landi. Dómari keppninnnar var Jason Hoke frá Bandaríkjunum. Vaka fékk enska pointer rakkann Wilberg sem hún fékk að æfa sig með í klukkutíma fyrir keppni. Í skiptum fékk hún samoyed. Því miður komu upp erfiðar aðstæður með rakkann Wilberg en var Vaka heppin að poodle hundurinn Pippin var til staðar og fékk hún að fara með hann inn í úrslitin. Vaka stóð sig frábærlega og var félaginu til sóma. |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|