Ungmennadeild ætlar að bjóða uppá námskeið fyrir unga sýnendur í nóvember, námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Verklegi hluti námskeiðsins verður haldinn eftirfarandi daga, kl. 19-20 í reiðhöllinni í Víðidal: Mánudaginn 1. nóvember Miðvikudaginn 3. nóvember Mánudaginn 8. nóvember Fræðslukvöld verður mánudaginn 15. nóvember, nánari upplýsingar þegar nær dregur. Námskeiðsverðið er 6.000 kr. og innifalið í því eru þessi þrjú verklegu skipti ásamt fræðslukvöldi og pizza veislu þar. Taka skal fram að allur ágóði af námskeiðinu rennur beint til deildarinnar og er því fjáröflun fyrir starf deildarinnar. Við hverjum alla unga sýnendur 9-17 ára (ártalið gildir) til að skrá sig á námskeiðið! Millifæra skal námskeiðsgjaldið á reikning deildarinnar hjá HRFÍ: Reikningur 515-26-680481, kt. 680481-0249, setja nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected]! ATH: Skráning telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist.t. sath - ATH! - FULLT ER Á NÁMSKEIÐIÐ!
Amanda Sif Rúnarsdóttir
27/10/2021 09:17:29 am
námskeiðið
Unnur Vala Einarsdóttir
29/10/2021 03:25:10 pm
Vil skrá mig á námskeið. Kemst þó ekki 8.nóv. Comments are closed.
|
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|