Stakar sýningarþjálfanir í boði í nóvember - athugið vel tímasetningar! Tímasetningar eru eftirfarandi: Föstudagur 11. nóvember
Skráning hér fyrir neðan - ATHUGIÐ FULLT Í YNGRI FLOKK! Staðsetning: Reiðhöllin C-TRÖÐ Víðidal - Ýtið HÉR fyrir link á staðsetningu. Við þurfum við að huga að því að reiðhöllin er staðsett inní miðju hesthúsahverfi og biðjum við ykkur um að sýna tillitssemi við hestamenn í hesthúsunum í kring. Þátttökugjald: 1.000 kr skiptið, athugið að hægt er að skrá sig á stök skipti. Gjaldið er staðfestingagjald og ekki hægt að fá endurgreitt eða eiga inni. Til þess að skráning teljist gild þarf að fylgja millifærsla! Reikningur 515-26-680481, kt. 680481-0249, setja nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected]! ATH! Börn á 9unda aldursári mega taka þátt í þjálfunum deildarinnar og skrá sig í yngri flokk Mjög mikilvægt er að börnin mæti með hunda sem þau hafa stjórn á á námskeiðið og hafa náð amk 9 mánaða aldri. ATHUGIÐ - FULLT ER Á NÁMSKEIÐIÐ - HÆGT ER AÐ SKRÁ Á BIÐLISTA Á NETFANGIÐ OKKAR: [email protected]
Þá fer að líða að næsta námskeiði. Í samstarfi við Ungmennadeild mun Erna Sigríður Ómarsdóttir, dómari á síðustu sýningu, halda námskeið fyrir unga sýnendur. Erna er sjálf fyrrum ungur sýnandi með mikla reynslu og þekkingu til að miðla til áhugsamra ungra sýnenda. TAKMARKAÐ PLÁSS! Námskeiðið er tvö skipti: Laugardagur 22. október kl. 13-14 Sunnudagur 23. október kl. 13-14 Áætlaður námskeiðstími er ein klst. hvorn daginn. Athugið að ef skráning er mikil gætum við þurft að skipta hópnum í tvennt og yrði næsti hópur þá kl. 14-15. Staðsetning: Blíðubakkahúsið Þátttökugjald: 6.000 kr. Skráningafrestur er til fimmtudagsins 20. október eða þar til námskeiðið fyllist. Til þess að skráning teljist gild þarf að fylgja millifærsla! Reikningur 515-26-680481, kt. 680481-0249, setja nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected]! Þar sem takmarkaður fjöldi kemst á námskeiðið verður farið eftir greiðslum þegar tekið er á móti skráningunum. Mikilvægt er að börnin mæti með hunda sem þau hafa stjórn á á námskeiðið og hafa náð amk. 9 mánaða aldri!! |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|