Dómari ágústsýningarinnar verður hin bandaríska Angela Lloyd. Angela byrjaði að sýna í tegundahring þegar hún var aðeins átta ára gömul. Þar sýndi hún þýsku fjárhunda og welsh corgi pembroke hunda föður síns. Þegar hún hafði aldur til fór hún að keppa í ungum sýnendum og er hún líklega enn þann dag í dag eini ungi sýnandinn sem hefur unnið keppni ungra sýnenda bæði á Crufts og Westminster sem er ótrúlegur árangur! Angela var seinna lærlingur í tíu ár til að gerast atvinnusýnandi. Hún öðlaðist ástríðu á dachshund og hefur nú ræktað strýhærðan dachshund í 24 ár. Hún er mjög farsæll sýnandi og var meðal annars Best In Show á Westminster árið 2011 með skoska hjartarhundinn Hickory. Angela hefur dæmt mikilvægar keppnir ungra sýnenda en hún dæmi lokakeppnina á Evrópusýningunni í Lillestrøm, Noregi, árið 2015 og úrslit Westminster árið 2019. Angela verður með námskeið fyrir unga sýnendur, mánudaginn 26. ágúst og hvetjum við alla til að skrá sig og bæta við í reynslubankann. Námskeiðin verða tvö, annað klukkan 17:00-19:00 (óvanir sýnendur) og hitt klukkan 19:00-21:00 (vanir sýnendur). ATH það er takmakaður fjöldi á námskeiðið og hafa þeir keppendur sem taka þátt í keppni ungra sýnenda forgang á námskeiðið. Verð er 5.000kr. Skráning fer fram hér: |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|