Í ár eru það Theodóra Róbertsdóttir, Elísabet Ásta Guðjónsdóttir, Erna Sigríður Ómarsdóttir og Brynja Kritsín Magnúsdóttir sem skipa Nordic Winner lið Íslands sem keppir í ungum sýnendum á Nordic Winner þann 4. nóvember n.k. Þjálfari liðsins er Auður Sif Sigurgeirsdóttir eins og undanfarin ár. Stelpurnar eru nú byrjaðar að æfa sig með tegundirnar sem þær völdu fyrir keppnina. Við óskum þeim góðs gengis á Nordic Winner og við vitum að þær munu verða Íslandi til sóma.
Eldri flokkurinn. 1. sæti, 2. sæti, 3. sæti og 4. sæti
Keppni ungra sýnenda á ágústsýningu HRFÍ var haldin 24. ágúst. Að þessu sinni voru 25 ungir sýnendur skráðir og fengum við tvo dómara að þessu, en Theres Johansson dæmdi yngir flokkinn og Börje Johansson dæmdi eldri flokkinn. Yngri flokkur: 1. sæti - Ingunn Birta Ómarsdóttir með Aussie - 40 stig 2. sæti - Berglind Gunnarsdóttir með Íslenskan fjárhund - 30 stig 3. sæti - Agatha Elín Steinþórsdóttir með Papillon - 20 stig 4. sæti - Hrafnhildur Hólm með Miniature Schnauzer - 10 stig Eldri flokkur: 1. sæti - Erna Sigríður Ómarsdóttir með Sheltie - 40 stig 2. sæti - Ylfa Dögg Ástþórsdóttir með Papillon - 30 stig 3. sæti - Brynja Kristín Magnúsdóttir með Malteser - 20 stig 4. sæti - Theodóra Róbertsdóttir með Írskan Setter - 10 stig Nú fara sýningarþjálfanir fyrir ágústsýninguna að byrja!
Þjálfanirnar verða haldnar inni og úti á bílaplaninu hjá Gæludýr.is Korputorgi og kostar skiptið 500 krónur og rennur sá peningur í ferðasjóð ungra sýnenda (þjálfunin 19.ágúst verður einungis úti). ATH vel dagsetningar því engin þjálfun verður um verslunarmannahelgina!! 12. ágúst 13:00 - 14:00 - ungir sýnendur 14:00 - 15:00 - tegundahópar 1, 4, 7, 10. 15:00 - 16:00 - tegundahópar 2, 5, 8. 16:00 - 17:00 - tegundahópar 3, 6, 9. 19. ágúst 13:00 - 14:00 - ungir sýnendur 14:00 - 15:00 - tegundahópar 1, 4, 7, 10. 15:00 - 16:00 - tegundahópar 2, 5, 8. 16:00 - 17:00 - tegundahópar 3, 6, 9. |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|