Sunnudaginn 21. maí n.k. kl. 13:00 ætlar Ásta María Guðbergsdóttir, hundasnyrtir og eigandi Dekurdýra, að kenna áhugasömum meðlimum Ungmennadeildar ýmislegt varðandi snyrtingu hunda. Meðal þess sem Ásta María mun kenna er: - Hvernig á að baða hund - Hvernig á að blása mismunandi feldtegundir hunda - Hvernig á að bursta feldinn og kemba - Hvernig á að reyta stríhærða hunda - Hvernig á að klippa klær hundsins - Snyrting fyrir sýningarhringinn Námskeiðið kostar 3.500 kr. eða 10 punkta (punktar úr umbunarkerfi Ungmennadeildar, hægt að sjá punkta frá 2016 og stöðu punkta 2017 HÉR). Léttar veitingar verða í boði deildarinnar. Skráning fer fram hér að neðan. Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 18. maí. Þann 23. febrúar síðast liðinn var ársfundur Ungmennadeildar HRFÍ haldinn á skrifstofu HRFÍ, Síðumúla 15. Góð mæting var á fundinn. Árskýrsla stjórnar var lesin upp sem er nú aðgengileg hér. Kosið var inn í stjórn en Auður Sif, Ágústa og Erna kláruðu sín tímabil en gáfu kost á sér aftur, Auður og Ágústa til tveggja ára og Erna gaf kost á sér til eins árs ásamt Stefaníu Stellu. Kosið var milli Ernu og Stefaníu og var Erna kosin inn til eins árs.
Stjórn árið 2017-2018 skipa því Auður Sif Sigurgeirsdóttir, Ágústa Pétursdóttir, Erna Sigríður Ómarsdóttir, Hafdís Jóna Þórarinsdóttir og Hilda Björk Friðriksdóttir og er því stjórn óbreytt frá fyrra tímabili. Eftir að fundi var lokið hélt Auður Sif fyrirlestur um hreyfingar og byggingu hunda sem var vel sóttur og gekk vel. Stjórn hélt sinn fyrsta fund í byrjun apríl þar sem stjórn skipti með sér verkum. Hafdís Jóna er formaður stjórnar, Ágústa ritari, Hilda gjaldkeri og Auður og Erna eru meðstjórnendur. Stjórn er farin af stað í skipulagningu viðburða fyrir árið og gengur það vel, dagskrá verður birt þegar búið er að festa dagsetningar og annað fyrir viðburðina. |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|