Nú er sýningarárið 2015 er á enda og liggja fyrir lokastig um stigahæstu ungu sýnendur ársins.
Stigahæsti ungi sýnandi í yngri flokki þetta árið Elena Mist Theodórsdóttir, en hún endaði með 150 stig! Við óskum Elenu Mist innilega til hamingju með frábæran árangur. Stigahæstu sýnendurnir í eldri flokki eru eftirfarandi: 1. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með 190 stig - Fulltrúi Íslands á Crufts 2016 2. sæti - Margrét Hauksdóttir með 90 stig - Fulltrúi Íslands á Heimssýningunni 2016 í Rússlandi 3. sæti - Berglind Gunnarsdóttir með 80 stig - Fulltrúi Íslands á Evrópusýningunni 2016 í Belgíu 4. sæti - Ylfa Dögg Ástþórsdóttir með 60 stig Þær mynda einnig Nordic Winner liðið sem mun keppa á Nordic Winner í Svíþjóð í desember næst komandi! Óskum þeim innilega til hamingju og óskum þeim góðs gengis á keppnunum úti! Seinasta keppni ungra sýnenda á árinu var haldin föstudaginn 13. nóvember sl. á nóvembersýningu HRFÍ í TM-reiðhöllinni í Víðidal. 28 ungmenni voru skráð að þessu sinni og dómari var Hugo Quevedo frá Noregi. Úrslit voru eftirfarandi: Yngri flokkur: 1. sæti - Elena Mist Theodórsdóttir með silky terrier - 40 stig 2. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með afghan hound - 30 stig 3. sæti - Þórdís Jórunn Tryggvadóttir með labrador - 20 stig 4. sæti - Snærún Ynja Halldórsdóttir með labrador - 10 stig Eldri flokkur: 1. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með enskan springer spaniel - 40 stig 2. sæti - Ylfa Dögg Ástþórsdóttir með papillon - 30 stig 3. sæti - Berglind Gunnarsdóttir með siberian husky - 20 stig 4. sæti - Ingunn Birta Ómarsdóttir með australian shepherd - 10 stig Fleiri myndir má finna HÉR! Hægt er að ýta á myndirnar hér að neðan til að sjá þær stærri. |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|