Dagur ungmennadeildar HRFÍ og Royal Canin verður haldinn hátíðlegur þann 2. október nk. í húsnæði Dýrheima að Víkurhvarfi 5.
Á þessum skemmtilega degi munu börn á aldrinum 3-9 ára fá tækifæri til að spreyta sig með fjórfætta vini sína auk þess sem keppt verður í flokkum ungra sýnenda og eldri sýnenda. Í barnaflokkum munu allir þátttakendur fá þátttökuverðlaun og verður ekki raðað í verðlaunasæti. Flokkarnir eru eftirfarandi: Börn 3-5 ára – Dómari: Fanney Rún Ólafsdóttir Börn 6-9 ára – Dómari: Fanney Rún Ólafsdóttir Yngri flokkur sýnenda 10-12 ára – Dómari: Brynja Kristín Magnúsdóttir Eldri flokkur sýnenda 13-17 ára – Dómari: Brynja Kristín Magnúsdóttir Fullorðsinflokkur 18-34 ára – Dómari: Birta Dröfn Valsdóttir Fullorðinsflokkur 35 ára og eldri – Dómari: Birta Dröfn Valsdóttir Ath. aldursárið gildir í þeim flokkum sem í boði eru. Þátttökugjald í öllum flokkum er 2.500 kr. Skráningarfrestur fyrir daginn er liðinn. Það var til og með 25.september. Þetta er frábær leið til að kynna börn fyrir sýningum og einnig góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Tímasetningar verða auglýstar um leið og fjöldi skráðra þátttakenda liggur fyrir. Vonumst til að sem flestir taki þátt í deginum með okkur! Kveðja, stjórn Ungmennadeildar HRFÍ. |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|