Elín Rós Hauksdóttir kemur til með að dæma unga sýnendur á tvöfaldri útisýningu HRFÍ í júní. Keppnin fer fram seinnipart föstudags, 8. júní. Elín hefur verið “í hundunum” frá ungum aldri og keppti í ungum sýnendum með frábærum árangri. Hún var meðal annars fulltrúi Íslands á Crufts, Heimssýningunni og Nordic Winner þar sem hún landaði öðru sæti í einstaklingskeppninni.
Við minnum ykkur á að síðasti skráningardagur á lægri gjaldskrá er næstkomandi miðvikudag, 2. maí. Við vonum að sem flestir ungir sýnendur skrái sig og taki þátt. Skráning fer fram á skrifstofu HRFÍ eða í síma 588-5255. Skrifstofan er opin virka daga frá klukkan 10-15. Dagur Ungmennadeildar fór fram sunnudaginn 15. apríl og gekk vonum framar! Frábær þátttaka var í öllum flokkum en í heildina voru næstum því 90 þátttakendur! Andinn var svo góður í húsinu og mikil skemmtun. Deildin vill þakka öllum þeim sem komu og nutu dagsins með okkur! Dómarar dagsins voru Ingunn Birta Ómarsdóttir sem dæmdi barnaflokkana, Hildur Sigrún Guðbrandsdóttir dæmdi unga sýnendur og Auður Sif Sigurgeisdóttir dæmdi fullorðisflokkana og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir!
Einnig vill stjórnin skila innilegu þakklæti til Dýrheima, Melabúðarinnar og Non-stop fyrir að gefa frábæra vinninga. Við vonum að allir hafi farið ánægðir heim, ungir sem aldnir! Úrslit dagsins: Allir í barnaflokki fóru heim sem sigurvegarar :D Yngri flokkur ungra sýnenda: 1. sæti - Freyja Guðmundsdóttir með íslenskan fjárhund 2. sæti - Júlía Hrönn Ásmundsdóttir með pug 3. sæti - Tanja Björk Adamsdóttir með tíbet spaníel 4. sæti - Birta Sól Hafsteinsdóttir með dverg schnauzer Eldri flokkur ungra sýnenda: 1. sæti - Vaka Víðisdóttir með siberian husky 2. sæti - Lovísa Helenudóttir með chihuahua 3. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með pug 4. sæti - Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir með flat-coated retriever Fullorðinsflokkur 18-34 ára 1. sæti - Birta Skúladóttir með dandie dinmont terrier 2. sæti - Edward Birkir Dóruson með chihuahua 3. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með ástralskan fjárhund 4. sæti - Anna Dís Arnarsdóttir með afghan hound Fullorðinsflokkur 35+ 1. sæti - Berglind Kristjánsdóttir með chihuahua 2. sæti - Edda Janette Sigurðsson með enskan cocker spaniel 3. sæti - Óli Þór Árnason með labrador 4. sæti - Svava Björk Ásgeirsdóttir með ástralskan fjárhund Við óskum öllum innilega til hamingju! Hægt er að sjá fleiri myndir HÉR Sæl öll, Dagur Ungmennadeildar verður haldinn hátíðlegur þann 15. apríl í reiðhöll Andvara að Hattavöllum. Dagkrá hefst stundvíslega klukkan 12:15. Skráning fór vonum framar en alls eru 86 einstaklingar skráðir til þátttöku og erum við ykkur innilega þakklát fyrir að vilja njóta dagsins með okkur og styrkja jafnframt Ungmennadeild HRFÍ! Við minnum ykkur á að dagskráin sem fylgir er aðeins viðmið og gætu tímarnir breyst. Verið því mætt stundvíslega svo þétt dagskráin gangi vel. Fjöldi í flokkum: Barnaflokkur 3-5 ára - 15 Barnaflokkur 6-8 ára - 18 Ungir sýnendur, yngri - 13 Ungir sýnendur, eldri - 11 Fullorðinsflokkur 18-34 ára - 13 Fullorðinsflokkur 35+ ára - 15 Minnum einnig á að einhverjir eiga eftir að greiða og geta þeir gert það með því að leggja inn á: Reikningsnúmer: 0140-26-799 Kennitala: 290399-2549 Þátttökugjald í barnaflokka: 1500kr. Þátttökugjald í unga sýnendur og fullorðinsflokka: 2000kr. Það verður kaffisala á staðnum en við erum því miður EKKI með posa. Einnig er gott að hafa í huga að þamba ekki of mikið yfir daginn þar sem engin salerni eru í reiðhöll Andvara. Hlökkum til að sjá ykkur á sunnudaginn! Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband :D Dagskrá: |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|