Þann 23. október næstkomandi verður hinn árlegi dagur ungmennadeildar endurtekinn! Í þetta sinn fögnum við 20 ára afmæli deildarinnar og samstarfi okkar með Royal Canin Íslandi! Skráningarfrestur til miðnættis 15. október nk.! Munum við bjóða upp á barnaflokka, keppni ungra sýnenda og match show! Match show er gamni keppni þar sem 2-4 hundar koma inn í hring með sýnanda sínum og besta parið fer áfram í úrslit, match show er óformleg keppni gerð til þess að hafa gaman, umhverfisþjálfa hundana og æfa sig sem sýnanda. Fjöldi hunda og frekari framkvæmd fer eftir fjölda skráninga. Allir yfir 13 ára aldri geta skráð sig í keppnina, óháð reynslu. Dregið er á staðnum í holl og er par valið úr hverju holli áfram í úrslit. Hægt er að skrá sig með nokkra hunda - eina krafan er að hundurinn sé með ættbók frá HRFÍ. Flokkar í boði og skráningargjald: 3-5 ára barnaflokur (1.500,- kr) 6-9 ára barnaflokkur (1.500,- kr) Yngri flokkur ungra sýnenda (2.000,- kr) Eldri flokkur ungra sýnenda (2.000,- kr) Match show - skráningargjald 2.500,- kr Hvolpaflokkur (3-9 mánaða) Ungliðar og unghundar (9-24 mánaða) Opinn flokkur (24 mánaða - 7 ára) Öldungar (8 ára + ) Einnig verður kynning á Rallý hlýðni á sýningunni sem er frábært sport fyrir hunda á öllum aldri og eigendur þeirra! ATH - UPPLÝSINGAR UM SKRÁNINGU OG GREIÐSLU HÉR FYRIR NEÐAN! Skráning fer fram á forminu hér að neðan, og millifæra skal á reikning 515-26-680481, kt, 680481-0249, setja skal nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected] til þess að skráning teljist gild. Ath! Krafa er að hundarnir sem taki þátt í ungum sýnendum eða match show séu með ættbók frá Hundaræktarfélagi Íslands. Hundar í keppni ungra sýnenda þurfa að hafa náð 9 mánaða aldri. Taka má þátt með gelda hunda í báðum viðburðum. Keppni ungra sýnenda telur EKKI til stiga. SKRÁNINGU ER LOKIÐ
Vegna fjölda fyrirspurna um næsta námskeið, höfum við skipulagt námskeið í ágúst fyrir unga sýnendur!!
Ungmennadeild ætlar að bjóða uppá námskeið fyrir unga sýnendur í ágúst, námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Námskeiðið verður haldið eftirfarandi daga, nákvæmari tímasetning kemur: Miðvikudagur 4. ágúst Mánudaginn 9. ágúst Miðvikudaginn 11. ágúst Mánudaginn 16. ágúst Þjálfarar námskeiðsins verða Rannveig Gauja Guðbjartsdóttir og Erna Sigríður Ómarsdóttir, sem eru báðar fyrrum ungir sýnendur. Námskeiðsverðið er 8.000 kr. og innifalið í því eru þessi fjögur skipti ásamt veglegum fræðslupakka og heimaverkefnum sem krakkarnir fá á námskeiðinu. Taka skal fram að allur ágóði af námskeiðinu rennur beint til deildarinnar og er því fjáröflun fyrir starf deildarinnar. Staðsetning námskeiðsins verður auglýst þegar nær dregur. Við hverjum alla unga sýnendur 9-17 ára (ártalið gildir) til að skrá sig á námskeiðið! Millifæra skal námskeiðsgjaldið á reikning deildarinnar hjá HRFÍ: Reikningur 515-26-680481, kt. 680481-0249, setja nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected]! ATH: Skráning telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist.t. Uppfært 1. ágúst: Búið er að loka fyrir skráningu Ungmennadeild ætlar að bjóða uppá námskeið fyrir unga sýnendur í júní. Námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum.
Námskeiðið verður haldið eftirfarandi daga, nákvæmari tímasetning kemur síðar: Mánudaginn 21. júní Miðvikudaginn 23. júní Mánudaginn 28. júní Þjálfarar námskeiðsins verða Rannveig Gauja Guðbjartsdóttir og Erna Sigríður Ómarsdóttir sem eru báðar fyrrum ungir sýnendur. Námskeiðsverðið er 6.000 kr. og innifalið í því eru þessi þrjú skipti ásamt veglegum fræðslupakka sem krakkarnir fá á námskeiðinu. Taka skal fram að allur ágóði af námskeiðinu rennur beint til deildarinnar og er því fjáröflun fyrir starf deildarinnar. Millifæra skal námskeiðsgjaldið á reikning deildarinnar hjá HRFÍ: Reikningur 515-26-680481, kt. 680481-0249, setja nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected]! Staðsetning námskeiðsins verður auglýst fljótlega. Við hverjum alla unga sýnendur til að skrá sig á námskeiðið Ungmennadeild heldur tvær sýningarþjálfanir fyrir UNGA SÝNENDUR tvo þriðjudaga fyrir keppnina 12. júní. Uppfært, bættum við æfingu 10. júní líka!
Þjálfanirnar verða: Þriðjudaginn 1. júní kl. 18-19 Þriðjudaginn 8. júní kl. 18-19 Þriðjudaginn 10. júní kl. 18-19 Skiptið kostar 1.000 kr. og skal skrá sig fyrir fram í formið hér að neðan og millifæra skráningargjald á reikning deildarinnar hjá HRFÍ: Reikningur 515-26-680481, kt. 680481-0249, setja nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected]! Ársfundur Ungmennadeildar HRFÍ var haldinn í kvöld, 23. febrúar, á skrifstofu HRFÍ. Vægast sagt slök mæting var á fundinn, því miður.
Ársskýrsla starfsársins 2020-2021 var lesin upp og samþykkt. Í stjórn voru laus tvö sæti til tveggja ára en Anna Dís og Stefanía Stella luku sínum tímabilum og gáfu ekki kost á sér aftur og þakkar deildin þeim fyrir vel unnin störf. Engin framboð voru í stjórn og skipa því einungis þrír aðilar stjórnina starfsárið 2021-2022, þær Erna Sigríður Ómarsdóttir, Rannveig Gauja Guðbjartsdóttir og Theodóra Róbertsdóttir. Í lok fundars voru stigahæstu sýnendur 2020 heiðraðir. Hægt er að skoða ársskýrslu stjórnar og fundargerð frá ársfundi hér. Ársfundur Ungmennadeildar HRFÍ verður haldinn þriðjudaginn 23. febrúar kl. 18 (í stað fimmtudagsins 18. febrúar eins og áður var auglýst) á skrifstofu Hundaræktarfélagsins, Síðumúla 15, 2. hæð.
Dagskrá fundarins: 1. Farið yfir ársskýrslu deildarinnar 2. Stjórnarkjör - kosið um tvö sæti til tveggja ára 3. Önnur mál 4. Heiðrun stigahæstu sýnenda ársins 2020 - 1. sæti í yngri flokki og 1.-4. sæti í eldri flokki Vegna þeirra fjöldatakmarkanna sem eru í gildi biðjum við þá sem hafa áhuga á að mæta á fundinn að skrá sig sem fyrst á netfangið [email protected]. Hlökkum til að sjá ykkur! FUNDINUM HEFUR VERIÐ FRESTAÐ TIL 23. FEBRÚAR KL. 18, SJÁ NÝJA FRÉTT Á HEIMASÍÐUNNI.
Ársfundur Ungmennadeildar HRFÍ verður haldinn fimmtudaginn 18. febrúar kl. 18 á skrifstofu Hundaræktarfélagsins, Síðumúla 15, 2. hæð. Dagskrá fundarins: 1. Farið yfir ársskýrslu deildarinnar 2. Stjórnarkjör - kosið um tvö sæti til tveggja ára 3. Önnur mál 4. Heiðrun stigahæstu sýnenda ársins 2020 - 1. sæti í yngri flokki og 1.-4. sæti í eldri flokki Vegna þeirra fjöldatakmarkanna sem eru í gildi biðjum við þá sem hafa áhuga á að mæta á fundinn að skrá sig sem fyrst á netfangið [email protected]. Hlökkum til að sjá ykkur! Árið 2020 hefur vægast sagt verið fordæmalaust og höfum við í Ungmennadeild fundið vel fyrir áhrifum heimsfaraldurs eins og allur heimurinn.
Sökum takmarkana tilkynnum við stigahæstu sýnendur ársins rafrænt með þessari frétt. Aðeins var hægt að taka mið af einni sýningu, þar sem ekki var heimilt að halda fleiri sýningar á árinu. Stigahæsti sýnandi ársins í yngri flokki er Eyrún Eva Guðjónsdóttir. Stigahæstu sýnendur ársins í eldri flokki og hefðu þær einnig skipað landslið Íslands á Nordic Winner ef sú keppni hefði verið haldin: Stigahæsti sýnandi ársins - Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir 2. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir 3. sæti - Hrönn Valgeirsdóttir 4. sæti - Freyja Guðmundsdóttir Þar sem ekki liggur endanlega fyrir hvaða stóru erlendu keppnir verða haldnar á árinu 2021 mun stjórn Ungmennadeildar hafa samband við stigahæstu sýnendur þegar málin skýrast á nýju ári. Við óskum stigahæstu sýnendum ársins innilega til hamingju með árangurinn!! Vonumst til að geta verið með virkt starf sem allra fyrst á nýju ári en þangað til hvetjum við ykkur til að vera dugleg að gera eitthvað skemmtilegt með hundunum ykkar! Jólakveðja, Stjórn Ungmennadeildar |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|