Norðurljósasýning HRFÍ var haldin helgina 29. febrúar - 1. mars í reiðhöll Fáks í Víðidal. Ungir sýnendur fóru fram á laugardeginum og var dómari keppninnar Theodóra Róbertsdóttir. Alls voru 29 sýnendur skráðir til leiks.
Úrslit voru eftirfarandi: Yngri flokkur: 1. sæti - Eyrún Eva Guðjónsdóttir með cavalier king charles spaniel 2. sæti - Sara Margrét Svansdóttir með pudelpointer 3. sæti - Andrea Aradóttir með cavalier king charles spaniel 4. sæti - Margrét Anna Vilhjálmsdóttir Lapas með dachshund, miniature, smooth-haired Eldri flokkur: 1. sæti - Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir með afghan hound 2. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með afghan hound 3. sæti - Hrönn Valgeirsdóttir með Irish soft coated wheaten terrier 4. sæti - Freyja Guðmundsdóttir með australian shepherd Ársfundur Ungmennadeildar HRFÍ fór fram 10. mars sl. á skrifstofu HRFÍ. Slök mæting var á fundinn. Stefanía Björgvinsdóttir var fundastjóri og lásu meðlimir stjórnar upp ársskýrslu starfsársins 2019-2020, skýrslan var samþykkt.
Í stjórn voru laus þrjú sæti til tveggja ára en Bergdís Lilja, Hafdís Jóna og Lovísa Líf luku sínum tímabilum og gáfu ekki kost á sér aftur og þakkar deildin þeim fyrir vel unnin störf. Erna Sigríður, Rannveig Gauja og Theodóra gáfu kost á sér í stjórn og voru sjálfkjörnar inn. Að loknum fundi hélt Gunnhildur Jakobsdóttir áhugavert erindi um hundaþjálfun og myndaðist áhugaverð umræða og fræðsla - þökkum við henni kærlega fyrir. Ný stjórn hefur nú haldið sinn fyrsta fund og skipt með sér verkum á eftirfarandi hátt: Anna Dís Arnarsdóttir - meðstjórnandi Erna Sigríður Ómarsdóttir - gjaldkeri Rannveig Gauja Guðbjartsdóttir - formaður Stefanía Stella Baldursdóttir - meðstjórnandi Theodóra Róbertsdóttir - ritari Ný stjórn vinnur að því að uppfæra það sem vantar inn á heimasíðuna. |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|