Ungir Sýnendur - hvað skal hafa í huga
Ungir sýnendur/Junior Handling
- samantekt –
Nokkrir mjög góðir punktar sem vert er að hafa í huga þegar keppt er í flokki ungra sýnenda og einnig þegar hundur er sýndur almennt á hundasýningum.
Ungir sýnendur
Ungir sýnendur er flokkur fyrir ungmenni á aldrinum 10-17 ára. Keppt er í tveimur aldursflokkum, yngri flokki sem er fyrir krakka á aldrinum 10-12 ára og eldri flokki fyrir 13-17 ára. Keppt er í ungum sýnendum um allan heim. Í ungum sýnendum dæmir dómarinn hvernig hundurinn er sýndur, sem sagt, hvernig honum er stillt upp og hvernig hann er hreyfður, hvernig sambandið er á milli sýnanda og hunds, hvort sýnandi þekki tegund hundsins o.s.frv. Mikilvægt er að muna að hundurinn er ALLTAF númer 1, 2 og 3.
Markmið flokks ungra sýnenda er að þjálfa góða sýnendur fyrir framtíðina. Góður sýnandi auðveldar dómara starfið sitt og sér til þess að hundur sýni sínar bestu hliðar í dómi.
Í keppni ungra sýnenda er algengt að dómari spurji einhverra spurninga um hundinn/tegundina sem sýnandinn verður að geta svarað!
Líklegar spurningar dómara í keppni:
Nauðsynlegt er að afla sér eins mikilla upplýsinga og hægt er um tegundina sem sýnd er því dómarinn gæti spurt um hvað sem er. Gott er að lesa tegundabækur og staðla tegundarinnar sem finna má á fci.be sem og afla sér upplýsinga á netinu.
Undirbúningur
Undirbúningur sýnandans og hundsins fyrir keppni er mikilvægur. Gott er að hreyfa hundinn og gera með honum eitthvað sem honum þykir skemmtilegt, bara sýnandinn og hann! Mikilvægt er að byggja upp gott samband milli hunds og sýnanda með því að gera eitthvað skemmtilegt utan sýningahrings eða sýningaþjálfana. Með þessu tengir hann sýnandann sem skemmtilegan og ber fyrir honum virðingu og traust.
Gott er að æfa taumsamband milli hunds og sýnanda á þann máta að hundurinn geti hlaupið/gengið í lausum taum þar sem hundurinn fylgir sýnandanum án þess að hann þurfi að nota tauminn mikið. Einnig er gagnlegt að æfa “fígúrurnar” s.s. fram og til baka, þríhyrning og hring á stórum fleti og nota jafnvel stein sem dómara eða fá einhvern til að hjálpa sér. Mjög gott er að æfa hundinn að standa og stilla honum upp, hægt er að notast við spegil til að byrja með en gæta þarf þess að gera það ekki of oft svo hann verði ekki leiður á því. Það er einnig gott að kenna hundinum að frístilla, þar sem hundurinn stendur í lausum taum og stendur frjáls.
Nauðsynlegt er að hafa þekkingu á öðrum hundategundum því stundum láta dómarar sýnendur skipta um hunda sín á milli og þá er nú gott að vera búinn að öðlast reynslu með aðrar tegundir. Ungmennadeildin stendur ávallt fyrir æfingum fyrir unga sýnendur þar sem sýnendum gefst tækifæri á að æfa sig með fleiri tegundir. Svo má ekki gleyma því að maður lærir heilmikið á því að fylgjast með öðrum sýnendum, bæði á æfingum og á sýningum. Gætið þess að þjálfunin sé alltaf skemmtileg fyrir hundinn og sama hvernig gengur, endið þjálfunina alltaf á góðum nótum, t.d. með þvi´að leika við hundinn.
Sýningarútína
Á sýningum biður dómarinn sýnendur alltaf um að hreyfa hundinn og stilla honum upp.
Líklegar skipanir dómara:
Klæðnaður
Klæðnaður sýnandans er mikilvægur enda er hann bakgrunnur hundsins. Æskilegt er að föt sýnanda séu ekki í sömu litum og hundurinn. Einnig er borin sú virðing fyrir dómaranum að mæta snyrtilega til fara.
Æskilegur klæðnaður fyrir stelpur:
Ekki er mælt með:
Hár (stelpur):
Æskilegur klæðnaður fyrir stráka:
Ekki er mælt með:
Hárið:
Atriði sem vert er að hafa í huga þegar komið er inn í sýningarhring:
Vonandi hjálpar þessi samantekt ykkur að skilja út á hvað keppni ungra sýnenda gengur.
Gangi ykkur sem allra best!
Munið að það er alltaf hægt að hafa samband við stjórn Ungmennadeildar ef einhverjar spurningar vakna.

- Hve gamall er hundurinn?
- Hvaða tegundahóp (grúbbu) tilheyrir hann?
- Hvert er ræktunar/heimaland tegundarinnar?
- Til hvers er tegundin notuð?
- Hversu margar tennur eiga hundar að hafa?

- Fram og til baka
- Þríhyrningur
- Hringur
- Fram og til baka, tveir og tveir saman. Þá er gott að vera búinn að ákveða að annar sýnandinn segir ,,snú” þegar best er að snúa. Þegar sýnendur fara tveir og tveir saman verða þeir að vera samtaka og vera á sama hraða.
- Stilla hundinum upp
- Frístilla hundinum
- Sýna tennur/bit. Þegar tennur eru sýndar eru framtennurnar sýndar fyrst, svo tanngarðurinn sem snýr að dómara og að lokum tanngarðurinn sem snýr frá dómara. Þegar bit er sýnt er allur tanngarðurinn sýndur í einu. Þegar tennur eru sýndar þarf sýnandi að gæta þess að vera ekki með fingurna fyrir og gera þetta eins snyrtilega og hægt er. Aldrei má halda fyrir nef hundsins. ATH! Dómarinn á ekki að þurfa að beygja sig í allar áttir til þess að sjá tennur hundsins. Þess vegna verður sýnandinn að beina munni hundsins í átt að dómaranum. Þetta þarf að æfa vel og hundurinn þarf að vera vanur því að tennur hans séu sýndar/skoðaðar.
Klæðnaður
Klæðnaður sýnandans er mikilvægur enda er hann bakgrunnur hundsins. Æskilegt er að föt sýnanda séu ekki í sömu litum og hundurinn. Einnig er borin sú virðing fyrir dómaranum að mæta snyrtilega til fara.
Æskilegur klæðnaður fyrir stelpur:
- Hnésítt pils og skyrta, bolur eða jakki við
- Buxur og skyrta, bolur eða jakki við
- Hnésíður kjóll
- Dragt (t.d. buxnadragt, kjóldragt eða pilsdragt)
- Penir skór með lágum en góðum botni
- Gott ef fatnaðurinn sé með vasa þar sem hægt er að geyma verðlaunabita fyrir hundinn
- Einnig hægt að nota penar mittistöskur fyrir verðlaunabita.
Ekki er mælt með:
- Flaksandi eða þröngu pilsi eða kjól
- Of stuttu pilsi eða kjól
- Jogging-galla eða gallabuxum
- Óhreinum fötum
- Skóm með þykkum botni eða háhæluðum skóm. Skórnir virðast klunnalegir og þið getið þess að auki ekki hreyft ykkur eðlilega og þar af leiðandi hreyfir hundurinn sig ekki eðlilega.
- Skítugum íþrótta- eða útiskóm.
Hár (stelpur):
- Gætið þess að hárið sé ekki fyrir andlitinu. Þægilegt er að vera með snúð, tagl eða fléttu. Óæskilegt er að hafa hárið flaksandi því það truflar ykkur og dregur athygli ykkar frá hundinum og dómaranum.
Æskilegur klæðnaður fyrir stráka:
- Jakkaföt
- Buxur (snyrtilegar gallabuxur, t.d. svartar eða dökkbláar), skyrta og vesti eða jakki við
- Buxur og skyrta við eða flott peysa (ekki íþróttapeysa eða hettupeysa)
- Flatbotna, snyrtilegir skór
Ekki er mælt með:
- Gallabuxum (snjáðum) eða jogging/íþróttagalla
- Klunnalegum skóm með grófum botni
- Skítugum íþrótta- og útiskóm
Hárið:
- Vel greitt og snyrtilegt, má ekki vera fyrir augunum.
Atriði sem vert er að hafa í huga þegar komið er inn í sýningarhring:
- Aldrei tala við dómarann nema hann spyrji einhvers.
- Vera alltaf kurteis við dómarann og starfsmenn sýningarinnar.
- Vera kurteis við aðra sýnendur og sýna íþróttamannslega framkomu, t.d. óska sigurvegurum til hamingju, sama hvernig gengur.
- Alltaf vera þolinmóð þótt hundurinn geri ekki nákvæmlega það sem þið vilijð að hann geri. T.d. standi ekki kyrr eða hleypur á stökki eða vill kannski ekki hlaupa. Aldrei má skamma hund harkalega inni í hring!
- Sýnanda sem sýnur harkalega framkomu inni í hring má vísa úr keppni.
- Aldrei gefast upp eða sýna nein merki um pirring eða óþolinmæði. Ef það er eitthvað sem gengur ekki upp þá þarf að halda þolinmæði. Dómarinn metur það mikils ef þið gefist ekki upp!
- Hælið alltaf hundinum, klappið honum eða gefið honum smá bita. Sýnið hundinum ávallt athygli og sjáið til þess að þeim leiðist ekki á meðan þið bíðið eftir að það sé komið að ykkur.
- Passið að gefa hundinum ekki nammibita rétt áður en dómarinn skoðar hundinn eða áður en þið sýnið tennur svo kjaftur hundsins sé ekki fullur af mat, það finnst dómaranum örugglega ekkert sérstaklega geðslegt.
- Reynið að gera fígúrurnar, fram og til baka og þríhyrning eins beint og unnt er. Gætir þess að hafa allar línur eins beinar og öll horn eins skörp og hægt er. Lítið ávallt upp til þess að sjá hvert þið stefnið og munið að nýta hringinn sem best, sérstaklega ef þið eruð með stóra hunda sem þarfnast mikillar hreyfingar.
- Hafið allar hreyfingar og skiptingar eins einfaldar og hægt er.
- Fylgist alltaf vel með dómaranum og verið tilbúin þegar röðin kemur að ykkur. Verið alltaf meðvituð um það sem er að gerast inni í hring. Gott er að fylgjast með öðrum sýnendum ef ske kynni að dómarinn láti skipta um hunda. Hundurinn á samt ávallt að vera númer 1, 2 og 3!
- Fylgist vel með þegar dómarinn talar við ykkur og horfið í augun á honum þegar þið eigið við hann samskipti. Munið einnig að þakka honum ávallt fyrir!
- Gott er að stoppa ca. 1 og ½ metra frá dómara þegar hundinum er stillt upp. Fjarlægðin þarf að vera næg til þess að dómarinn geti séð hundinn í heild sinni. Ef farið er of nálægt dómaranum sér hann aðeins bak hundsins.
- Reynið að vera ávallt slök því hundurinn ykkar er meðvitaður um hvernig þið eruð og slakar þar af leiðandi líka á.
- Hafið gott taumsamband við hundinn. Reynið einnig að hafa allan tauminn inni í lófanum, ekki láta han lafa úr lófanum eða hafa hann vafinn utan um höndina.
- Talið skemmtilega við hundinn og verið glaðleg þegar þið hreyfið hann. Munið að tala róandi við hann og gætið þess að honum finnst ávallt gaman inni í hring með ykkur og að honum líði vel!
- Takið tillit til hinna sýnendanna, gætið þess að bilið sé nægt á milli ykkar og hafið hundinn í beinni línu við hundinn á undan.
- Hafið ávallt stjórn á hundinum ykkar og ekki láta hann flaðra upp á dómarann eða ykkur.
- Látið hundinn alltaf gera stykkin sín áður en komið er inn í sýningarhöllina.
- Ef hundurinn ykkar gerir stykkin sín inni í sýningarhring verðið þið að vera með poka meðferðis og hreinsa upp eftir hann! - Verið stolt af hundinum ykkar og hafið gaman af þessu!
- Þið getið alltaf notað reynslu ykkar úr ungum sýnendum þegar þið byrjið að sýna hunda á sýningum.
- Ekki vera svekkt ef ekki gengur allt sem skyldi. Þið gerið bara betur næst! Hver dómari hefur ólíkan smekk á sýnendum og er það álit hans sem gerir upp á milli.
- Gerið ávallt yfkkar besta því ekki er hægt að gera betur en það. Munið að þetta er til þess að hafa gaman af!
- Þegar keppni lýkur þá skuluð þið alltaf enda á góðum nótum með því að leika við hundinn og hrósa honum. Reynslan á alltaf að vera ánægjuleg fyrir hundinn, sama hvernig gengur og sama hvernig hann hagar sér inni í hringnum.