Nú eru tæplega tveir mánuðir í næstu sýningu og ætlar unglingadeildin að bjóða upp á sýningarnámskeið helgina 12. – 13. október. Tímarnir eru 1,5 tími hvorn daginn og boðið upp á byrjendahóp og framhaldshóp. Námskeiðið verður meira uppsett sem almenn kennsla á hvað við gerum til að bæta hundinn og hvernig aðferðir og hvernig við komum hundinum best á framfæri. Mun ítarlega en sýningarþjálfanir en jafnframt góður grunnur til að bæta sig svo á þjálfunum sem koma á eftir. Þjálfari verður Theodóra Róbertsdottir
Byrjendur (óvanir) fara vel í grunninn, tilgang fígúranna, sýningarskipulag og ástæður fyrir því sem við gerum á sýningum ásamt því að kynna helstu aðferðir og undirbúning fyrir sýningu. Framhald (vanir) fara í að læra meiri tix sem hægt er að notast við hunda sem sýnandi sýnir í framtíðinni, nemendur læra af hvor öðrum og unnið undir meiri pressu. Námskeiðið er hugsað fyrir hinn almenna sýnanda og verður takmarkaður fjöldi. Skráningargjald er 2000kr og fer skráning fram á [email protected] og þar þarf að koma fram nafn, tegund hunds/hunda, í hvorum hópnum þið tilheyrið og netfang. Keppni ungra sýnenda á septembersýningu HRFÍ var haldin 6. september sl. í Klettagörðum 6 og voru 22 ungir sýnendur skráðir til keppni. Dómari að þessu sinni var Frank Kane frá Bretlandi.
Yngri flokkur: 1. sæti - Agatha Elín Steinþórsdóttir með Chowchow - 40 stig 2. sæti - Sigrún Sandra Valdimarsdóttir með Papillon - 30 stig 3. sæti - Glódís Rún Sigurðardóttir með Australian Shepherd - 20 stig 4. sæti - Elena Mist Theodórsdóttir með Labrador - 10 stig Eldri flokkur: 1. sæti - Erna Sigríður Ómarsdóttir með Tibetan Spaniel - 40 stig 2. sæti - Hilda Björk Friðriksdóttir með Standard Schnauzer - 30 stig 3. sæti - Theodóra Róbertsdóttir með German Wirehaired Pointer - 20 stig 4. sæti - Birta Dröfn Valsdóttir með Papillon - 10 stig |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|