Nú eftir úrslit septembersýningar HRFÍ myndaðist Nordic Winner lið Íslands sem mun keppa á Nordic Winner sem verður í Helsinki í Finnlandi 9. desember næst komandi.
Í liðinu eru stigahæstu fjórir sýnendur í eldri flokkir, en jafnar í 4.-5. sæti voru Elena Mist Theodórsdóttir og Stefanía Stella Baldursdóttir og þurfti því að hafa keppni um hvor þeirra fengi sæti í liðinu. Torbjörn Skaar frá Svíþjóð var fenginn til að dæma og var Elena valinn sigurvegari. Í liðinu eru því þær: Berglind Gunnarsdóttir Elena Mist Theodórsdóttir Ingunn Birta Ómarsdóttir Vaka Víðisdóttir Auður Sif Sigurgeirsdóttir mun fylgja þeim út sem þjálfari og vera þeim innan handar í keppninni. Við óskum stelpunum góðs gengis á Nordic Winner í desember! Septembersýning HRFÍ var haldin helgina 15.-17. september sl. Keppni ungra sýnenda fór fram föstudagskvöldið 15. september. Dómari var Patrick Oware frá Noregi og voru 26 ungmenni skráð í keppnina.
Yngri flokkur: 1. sæti - Maríus Þorri Ólason með cavalier king charles spaniel - 40 stig 2. sæti - Freyja Guðmundsdóttir með íslenskan fjárhund - 30 stig 3. sæti - Hrönn Valgeirsdóttir með australian shepherd - 20 stig 4. sæti - Herbert Snær Númason með Papillon - 10 stig Eldri flokkur: 1. sæti - Vaka Víðisdóttir með australian shepherd- 40 stig 2. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með írskan setter - 30 stig 3. sæti - Berglind Gunnarsdóttir með siberian husky - 20 stig 4. sæti - Ingunn Birta Ómarsdóttir með tíbetan spaniel - 10 stig Hægt er að smella á myndirnar til að sjá þær stærri en fleiri myndir er hægt að finna HÉR |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|