Þann 26. október verður Dagur Ungmennadeildar haldinn hátíðlegur í Reiðhöll Andvara að Hattavöllum. Boðið verður upp á flokka fyrir alla áhugasama sýnendur. Einnig verðum við með 'match-show' fyrir hunda. Flokkar í sýnendakeppni verða eftirfarandi: - Barnaflokkur 3-5 ára - Barnaflokkur 6-8 ára Dómari: Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir Ath. allir í barnaflokkum fara heim sem sigurvegarar og verður ekki raðað í sæti. - Ungir sýnendur 9-12 ára - Ungir sýnendur 13-17 ára Dómari: Stefán Arnarson Fullorðinsflokkur 18-35 ára Fullorðinsflokkur 35+ Dómari: Anna Dís Arnarsdóttir MATCH SHOW verður fyrir hunda af öllum tegundum. Keppt verður í eftirfarandi flokkum: hvolpaflokkur 4-9 mánaða, ungliðar og unghundar, fullorðinsflokkur, öldungar og free style (niðurrakaðir, geldingar, tannlausir o.fl.) Dómarar: Ásta María Karlsdóttir og Erna Sigríður Ómarsdóttir Tveir og tveir hundar í hverjum flokki fara inn í hringinn og velur dómarinn annan hundinn til þess að fara áfram í undanúrslit og úrslit. Að lokum stendur uppi einn sigurvegari í hverjum flokki. Sigurvegarar úr hverjum flokki keppa svo um besta hund sýningar. ATH! HUNDARNIR ÞURFA AÐ VERA ÆTTBÓKAFÆRÐIR HJÁ HRFÍ Við vonum að sem flestir geti tekið þátt á þessum frábæra degi og hjálpað okkur að efla Ungmennadeildina og unga fólk framtíðarinnar! Síðasti skráningardagur er 22. október! Skráningargjald skal lagt inn á kt. 090404-2960 og reikningsnr: 0537-14-407991 fyrir þann dag svo skráning sé gild.. Eigandi reiknings: Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir Vinsamlegast takið fram nafn þátttakanda/hunds í "skýringu" og sendið staðfestingu á greiðslu á netfangið [email protected] Verðskrá: Barnaflokkar: 1.500 kr. Ungir sýnendur og fullorðinsflokkar: 2.000 kr. Match show: 2.000 kr. Helgina 5.-6. október verður haldið byrjendanámskeið í ungum sýnendum á vegum Ungmennadeildar HRFÍ. Námskeiðið fer fram klukkan 13:00-14:30 í reiðhöll Andvara að Hattavöllum 11. Námskeiðið er opið öllum ungmennum á aldrinum 9-17 ára. Farið verður vel í öll grunnatriði og hvað fer fram í hring ungra sýnenda. Námskeiðið hentar því mjög vel fyrir þau sem hafa aldrei eða lítið keppt í ungum sýnendum. Leiðbeinendur verða Auður Sif Sigurgeirsdóttir, fyrrum ungur sýnandi og þjálfari landsliðsins til tólf ára, og Rannveig Gauja Guðbjartsdóttir, fyrrum ungur sýnandi og núverandi þjálfari landsliðsins. |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|