Glæsilegur árangur íslenska liðsins á Nordic Winner í Noregi!
Pre-judging fór fram kl. 11 (norskum tíma) að morgni þann 15. nóvember en þær fengu að hitta hundana sína klukkutíma fyrir keppni til að kynnast þeim - þær kepptu fyrst sem lið og svo sem einstaklingar Hafdís sýndi samoyed, Hilda sýndi jack russell terrier, Margrét sýndi whippet og Ylfa sýndi papillon! Öll liðin fóru inn saman í stóra hringinn seinna um daginn með þjálfurum sínum en þar hreppti Ísland 3. sætið! Í stóra hringinn mættu svo efstu 10, sem dómarinn valdi í pre-judging fyrr um daginn, en í þeim hópi voru báðar Hafdís og Hilda. Hilda gerði sér svo lítið fyrir og landaði 3. sætinu í einstaklingskeppninni! Glæsilega gert hjá stelpunum, enda félaginu til mikils sóma, og óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn!
0 Comments
Nú er sýningarárið 2014 er á enda og liggja fyrir lokastig um stigahæstu ungu sýnendur og því er hægt að birta lista yfir stigahæstu sýnendur ársins. Stigahæsti sýnandi í yngri flokki þetta árið er Agatha Elín Steinþórsdóttir, en hún endaði með 90 stig! Við óskum Agöthu innilega til hamingju með frábæran árangur. Stigahæstu sýnendurnir í eldri flokki eru eftirfarandi: 1. sæti - Helga Þöll Guðjóndóttir með 130 stig - Fulltrúi Íslands á Crufts 2015 2. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með 90 stig - Fulltrúi Íslands á Heimssýningunni 2015 3. sæti - Ylfa Dögg Ástþórsdóttir með 60 stig - Fulltrúi Íslands á Evrópusýningunni 2015 4. sæti - Margrét Hauksdóttir með 50 stig Nordic Winner lið félagsins kom í ljós eftir ágústsýningu HRFÍ þar sem Nordic Winner sýningin var haldin í Noregi helgina eftir nóvembersýningu HRFÍ og þótti það of lítill fyrirvari. Nordic Winner liðið saman stendur af: Hafdísi Jónu Þórarinsdóttur, Hildu Björk Friðriksdóttur, Margréti Hauksdóttur og Ylfu Dögg Ástþórsdóttur. Óskum þeim innilega til hamingju og óskum þeim góðs gengis á keppnunum úti! Seinasta sýning ársins var haldin helgina 8.-9. nóvember sl. en keppni ungra sýnenda fór fram föstudagskvöldið 7. nóvember í reiðhöllinni í Víðidal. Dómari keppninnar var Espen Engh frá Noregi og voru 24 ungmenni skráð til keppni að þessu sinni.
Yngri flokkur: 1. sæti - Elena Mist Theodórsdóttir með silky terrier - 40 stig 2. sæti - Vaka Víðisdóttir með siberian husky - 30 stig 3. sæti - Agatha Elín Steinþórsdóttir með chow chow - 20 stig 4. sæti - Glódís Rún Sigurðardóttir með australian shepherd - 10 stig Eldri flokkur: 1. sæti - Helga Þöll Guðjónsdóttir með snöggh. vorsteh - 40 stig 2. sæti - Ylfa Dögg Ástþórsdóttir með papillon - 30 stig 3. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með shetland sheepdog - 20 stig 4. sæti - Hilda Björk Friðriksdóttir með toy poodle - 10 stig |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|