Sýningaþjálfanir Ungmennadeildar fyrir Winter Wonderland sýningu HRFÍ fara fram sunnudagana 4. og 18. nóvember frá klukkan 12-15 í reiðhöll Andvara að Hattavöllum.
Athugið að það er ekki þjálfun sunnudaginn 11. nóvember!! Mikilvægt er að fólk taki með sér kúkapoka, sýningartaum og nammi/dót fyrir hundinn. Við viljum brýna á mikilvægi þess að fólk gangi vel um og hirði upp eftir hundana sína. Að venju kostar hvert skipti 1000 kr.- og rennur sá peningur óskiptur til ungmennastarfsins! (Frítt fyrir ungmenni á þjálfun ungra sýnenda) Frá klukkan 12-13 er þjálfun fyrir unga sýnendur á aldrinum 9-17 ára. Frá klukkan 13-14 er þjálfun fyrir litla hunda (borðhunda). Frá klukkan 14-15 er þjálfun fyrir stórar tegundir, alla hvolpa (stóra sem litla) og óvana sýnendur (allar tegundir). Hópskiptingin er aðeins viðmið en æskilegast er að þið mætið í réttan hóp svo þjálfanirnar gangi sem best upp. Hlökkum til að sjá ykkur! Evrópusýningin fór fram að þessu sinni í Varsjá í Póllandi helgina 11.-14. október 2018. Berglind Gunnarsdóttir var fulltrúi okkar í lokakeppni ungra sýnenda en hún var þriðji stigahæsti sýnandinn í eldri flokki eftir árið 2017. Hún sýndi hund af tegundinni Basenji og stóð sig vægast sagt frábærlegan og var félaginu til mikils sóma! Þetta var síðasta sýning Berglindar sem ungur sýnandi og óskum við henni innilega til hamingju með stórkostlegan feril!
Louise Dufwa, dómari okkar í ungum sýnendum á Winter Wonderland sýningu HRFÍ í nóvember, kemur til með að halda námskeið fyrir unga sýnendur. Námskeiðið verður haldið mánudaginn 26. nóvember frá klukkan 19-22 í Samskipahöllinni. Það verður aðeins einn hópur og því takmarkaður fjöldi sem kemst að. ATH að þeir keppendur sem taka þátt í keppni ungra sýnenda á sýningunni eru í forgangi á námskeiðið. Við hvetjum alla unga sýnendur til að skrá sig sem fyrst á námskeiðið og tryggja sér pláss á þetta frábæra námskeið! Verð á námskeiðið er 5.000kr en einnig geta þátttakendur notað 15 umbunarpunkta til að greiða fyrir námskeiðið Við minnum á sama tíma að síðasti skráningadagur á fyrri gjaldskrá fyrir nóvembersýninguna er 12. október. Skráning fer fram á skrifstofu HRFÍ eða í síma 588-5255. Skrifstofan er opin virka daga frá klukkan 10-15. Skráningarfresti á seinni gjaldskrá lýkur 26. október. Ekki gleyma ykkur :D Við kynnum með stolti dómara ungra sýnenda á Winter Wonderland sýningu HRFÍ sem haldin verður helgina 23.-25. nóvember í reiðhöll Fáks í Víðidal. Louise Dufwa hefur búið með hundum frá því hún fæddist og hafa þeir ávallt verið hluti af fjölskyldulífi hennar. Afi hennar ræktaði dachshund og var sýningadómari, faðir hennar, einnig fyrrum sýningadómari, var vel þekktur fyrir ræktun sína á enskum cocker spaniel og eru hundar hans enn á merki sænska Cocker Spaniel klúbbsins. Í dag heldur Louise áfram með ræktun fjölskyldunnar ásamt móður sinni, Ewu. Þær rækta Cairn terrier undir ræktunarnafninu Tribuns og hafa ræktað 98 meistara og 29 alþjóðlega meistara ásamt fjölda hunda sem hafa hlotið European- og World Winner titla. Louise var verulega virk í ungum sýnendum á hennar yngri árum og átti hún farsælan feril. Hún vann meðal annars sænsku lokakeppnina og var fulltrúi Svíþjóðar á Crufts og sigraði bæði einstaklings- og liðakeppnina á Nordic Winner. Hún dvaldi í Bandaríkjunum þar sem hún bjó og vann hjá þekkta terrier sýnandanum Susan Kipp. Louise hefur dæmt hunda úr öllum tegundahópum á opnum klúbbsýningum. Hún er fyrrum ritari sænska ungmennaráðsins og hefur hún tekið þátt í að skipuleggja sænsku lokakeppnina í ungum sýnendum sem og haldið námskeið fyrir dómara ungra sýnenda. Árið 2013 var hún heiðruð með Marikarlos styrk fyrir framlag hennar til ungu kynslóðarinnar í sænska hundaræktarfélaginu. Í dag er hún meðlimur vinnuhóps hreinræktaðra hunda hjá sænska hundaræktarfélaginu og dómari ungra sýnenda. Hún sýnir hunda um alla Evrópu en þó aðallega á Norðurlöndunum. Louise mun svo halda námskeið fyrir unga sýnendur mánudaginn 26. nóvember. Nánari upplýsingar koma síðar Við minnum ykkur á að síðasti skráningardagur á lægri gjaldskrá er 12. október. Við vonum að sem flestir ungir sýnendur skrái sig og taki þátt en þetta er síðasta sýning ársins. Skráning fer fram á skrifstofu HRFÍ eða í síma 588-5255. Skrifstofan er opin virka daga frá klukkan 10-15. Skráningarfresti á seinni gjaldskrá lýkur 26. október. Haustfögnuður Ungmennadeildar HRFÍ fór fram laugardaginn 29. september og lukkaðist virkilega vel. Það var góð þátttaka og frábær andi í húsinu. Deildin vill þakka þeim sem skráðu sig, nutu dagsins með okkur og á sama tíma styrktu deildina okkar!
Einnig viljum við skila innilegu þakklæti til dómaranna en það voru þau Auður Sif Sigurgeirsdóttir sem dæmdi barnaflokkana, Anja Björg Kristinsdóttir, Brynja Kristín Magnúsdóttir og Edward Birkir Dóruson sem dæmdu unga sýnendur og fullorðinsflokkana. Silja Unnarsdóttir var með skemmtilega kynningu á rallý-hlýðni og Ævar Valgeirsson með mjög áhugaverða kynningu á Retriever-veiðiþjálfun. Við þökkum þeim fyrir að kynna sín störf og vonandi juku þau áhuga ungu kynslóðarinnar á vinnu með hundunum sínum. Dagurinn hefði ekki lukkast svona vel ef það væri ekki fyrir styrktaraðila dagsins en við viljum þakka Dýrheimum fyrir vinninga og þátttökuverðlaun, Dekurdýrum og Non-stop fyrir vinninga. Við vorum verulega heppin að fá Stöð 2 í heimsókn. Hægt er að sjá fréttina hér: http://www.visir.is/k/8b619ec1-cc2d-4353-a171-9fcc71720756-1538248654673 Myndir frá deginum má sjá HÉR. ÚRSLIT: Ungir sýnendur, 10-17 ára:
Vonandi nutu allir dagsins, ungir sem aldnir! |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|