Hundaræktarfélag Íslands stóð fyrir tvöfaldri útisýningu nú um helgina og voru ungir sýnendur haldnir á fimmtudeginum fyrir, 19. júní, í Víðidal. Dómari að þessu sinni var Pernilla Lindström frá Svíþjóð.
Yngri flokkur: 1. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með Pug - 40 stig 2. sæti - Vaka Viðisdóttir með Siberian husky - 30 stig 3. sæti - Glódís Rún Sigurðardóttir með Australian shepherd - 20 stig 4. sæti - Elena Mist Theodórsdóttir með Shih tzu - 10 stig Eldri flokkur: 1. sæti - Helga Þöll Guðjónsdóttir með snögghærðan Vorsteh - 40 stig 2. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með Shetland sheepdog - 30 stig 3. sæti - Hilda Björk Friðriksdóttir með Miniature schnauzer - 20 stig 4. sæti - Margrét Hauksdóttir með Afghan hound - 10 stig Þökkum Ágústi Ágústsyni fyrir þessar myndir af keppninni! Í dag fór fram fyrsta æfingasýning Unglingadeildarinnar árið 2014 og heppnaðist mjög vel. 37 ungmenni voru skráð til leiks og var skipt í 3 flokka að þessu sinni. Unglingadeild byrjaði með nýjung sem er barna flokkur sem er fyrir krakka á aldrinum 5-8 ára. Boðið var svo upp á hefbundnu flokkana, yngri og eldri flokk en yngri flokkur var fyrir 9-12 ára í þetta sinn. Dómarar voru tveir í þetta skiptið en Sóley Ragna Ragnarsdóttir dæmdi barna flokk en Sóley Halla Möller dæmdi yngri og eldri flokk. Þessi sýning gildir EKKI til stiga í lok árs. Yngri flokkur: 1. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með pug 2. sæti - Elena Mist Theodórsdóttir með labrador retriever 3. sæti - Agatha Elín Steinþórsdóttir með írskan setter 4. sæti - Vaka Víðisdóttir með siberian husky Eldri flokkur: 1. sæti - Hilda Björk Friðriksdóttir með dverg schnauzer s/s 2. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með shetland sheepdog 3. sæti - Ingunn Birta Ómarsdóttir með siberian husky 4. sæti - Sigrún Sandra Valdimarsdóttir með american cocker spaniel Myndir eru að finna á facebook-síðu deildarinnar HÉR Stjórn Unglingadeildar þakkar eftir töldum aðilum stuðninginn fyrir sýninguna: Bed Head, Dýrabær, Dýralíf.is, Dýrheimar, Gæludýr.is, Lífland, og Royal Canin Keppni ungra sýnenda var haldin 21. febrúar sl. á febrúarsýningu HRFÍ sem haldin var í Klettagörðum 6. Skráð voru 30 ungmenni að þessu sinni og dómari var Rakel Ósk Þrastardóttir.
Yngri flokkur: 1. sæti - Agatha Elín Steinþórsdóttir með Chow chow - 40 stig 2. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með Pug - 30 stig 3. sæti - Brynjar Ari Magnússon með Íslenskan fjárhund - 20 stig 4. sæti - Védís Huld Sigurðardóttir með Australian shepherd - 10 stig Eldri flokkur: 1. sæti - Margrét Hauksdóttir með Afghan hound - 40 stig 2. sæti - Helga Þöll Guðjónsdóttir með Snögghærðan vorteh - 30 stig 3. sæti - Ingunn Birta Ómarsdóttir með Australian shepherd - 20 stig 4. sæti - Hilda Björk Friðriksdóttir með Standard schnauzer - 10 stig Fleiri myndir af ungum sýnendum er að finna hér hjá Ágústi Ágústsyni, stjórn Unglingadeildar þakkar honum fyrir myndirnar. |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|