Æfingarsýning Unglingardeildar og námskeið!
Þriðja æfingarsýning Unglingardeildar HRFÍ verður haldin n.k. 28. apríl (laugardagur) á Korputorgi og mun Auður Sif Sigurgeirsdóttir vera dómari að þessu sinni. Keppnisgjald mun nú vera 2000 kr. en innifalið í því verði er æfing helgina fyrir æfingarkeppnina og svo námskeið sem verður haldið 29. apríl (sunnudagur) og mun Auður Sif einnig standa fyrir því með Rannveigu Gauju sér til aðstoðar og hjálpa krökkunum. Skráning fer fram á netfang Unglingardeildar HRFÍ sem er [email protected] (Nafn, aldur, símanúmer og netfang) og munu skráðir aðilar fá frekari upplýsingar í pósti. Skráningarfrestur er til LAUGARDAGS 14.APRÍL NK.! ATH! Krakkar á níunda ári (ártalið gildir) geta tekið þátt í sýningunni! :) Með bestu kveðju - Stjórn Unglingadeildar HRFÍ 1. mars síðastliðin var aðalfundur Unglingadeildar HRFÍ haldinn og við þökkum fyrir frábærann fund! Við þökkum Guðrúnu H. og Rannveigu Gauju fyrir vel unnin störf innan stjórnarinnar! :) Theodóra kláraði einnig sitt tímabil en var kosin inn aftur til eins árs. Brynja Kristín og Helga Þöll sitja inni eitt ár í viðbót. Birta Dröfn og Erna Sigríður voru kosnar inn til tveggja ára.
Stjórn frá 2012-2013 eru því Theodóra Róbertsdóttir - formaður, Brynja Kristín, Helga Þöll, Birta Dröfn og Erna Sigríður :) Frekari upplýsingar eru undir Stjórn. |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|