Árið 2020 hefur vægast sagt verið fordæmalaust og höfum við í Ungmennadeild fundið vel fyrir áhrifum heimsfaraldurs eins og allur heimurinn.
Sökum takmarkana tilkynnum við stigahæstu sýnendur ársins rafrænt með þessari frétt. Aðeins var hægt að taka mið af einni sýningu, þar sem ekki var heimilt að halda fleiri sýningar á árinu. Stigahæsti sýnandi ársins í yngri flokki er Eyrún Eva Guðjónsdóttir. Stigahæstu sýnendur ársins í eldri flokki og hefðu þær einnig skipað landslið Íslands á Nordic Winner ef sú keppni hefði verið haldin: Stigahæsti sýnandi ársins - Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir 2. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir 3. sæti - Hrönn Valgeirsdóttir 4. sæti - Freyja Guðmundsdóttir Þar sem ekki liggur endanlega fyrir hvaða stóru erlendu keppnir verða haldnar á árinu 2021 mun stjórn Ungmennadeildar hafa samband við stigahæstu sýnendur þegar málin skýrast á nýju ári. Við óskum stigahæstu sýnendum ársins innilega til hamingju með árangurinn!! Vonumst til að geta verið með virkt starf sem allra fyrst á nýju ári en þangað til hvetjum við ykkur til að vera dugleg að gera eitthvað skemmtilegt með hundunum ykkar! Jólakveðja, Stjórn Ungmennadeildar |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|