Þá er sýningaárið 2018 komið á enda og var almennt góð skráning í keppni ungra sýnenda. Það var gaman að sjá hve margir nýir bættust í hópinn í lok árs og vonumst við til að sjá þau aftur á næsta ári! Stigahæsti sýnandi ársins í yngri flokki var Freyja Guðmundsdóttir með 140 stig en hún hefur nú lokið ferli sínum í yngri flokkiog mætir til leiks í eldri flokki á næsta ári. Úrslit í eldri flokki eru eftirfarandi: 1. sæti - Vaka Víðisdóttir með 130 stig - fulltrúi Íslands á Crufts 2019 2. sæti - Lovísa Helenudóttir með 110 stig - fulltrúi Íslands á EDS 2019 3. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með 90 stig - styrkur á sýningu að eigin vali 4. sæti - Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir með 40 stig Þær fjórar mynduðu landslið Íslands á Nordic Winner. Við óskum þeim innilega tl hamingju með árangurinn. Hlökkum til að sjá ykkur öll á næsta ári! Winter Wonderland sýning HRFÍ var haldin hátíðleg helgina 23.-25. nóvember. Á föstudeginum voru 29 ungmenni skráð í keppni ungra sýnenda en það er frábær skráning og var gaman að sjá mörg ný andlit! Dómari að þessu sinni var hin sænska Louise Dufwa. Yngri flokkur: 1. sæti - Hrönn Valgeirsdóttir með irish soft coated wheaten terrier 2. sæti - Freyja Guðmundsdóttir með tibetan spaniel 3. sæti - Egill Baltasar Arnarson með labrador retriever 4. sæti - Eyrún Eva Guðjónsdóttir með cavalier king charles spaniel Eldri flokkur: 1. sæti - Vaka Víðisdóttir með australian shepherd 2. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með pug 3. sæti - Snærún Ynja Hallgrímsdóttir með german shepherd 4. sæti - Lovísa Líf Helenudóttir með whippet Við óskum öllum keppendum til hamingju með frábæran árangur! Fleiri myndir má sjá HÉR. Þann 16. nóvember fór fram Nordic Winner keppni ungra sýnenda í Lillestrøm, Noregi. Dómai var Janelle W. Robbins.
Landslið Íslands skipuðu þær Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir, Lovísa Helenudóttir, Stefanía Stella Baldursdóttir og Vaka Víðisdóttir. Þjálfari og fararstjóri var Rannveig Gauja Guðbjartsdóttir. Á fimmtudagskvöldinu var haldinn kvöldverður fyrir alla keppendur þar sem krakkarnir fengu tækifæri á að kynnast öðrum í sama áhugamáli. Þá fengu stelpurnar einnig að vita hvaða tegundir þær kæmu til með að sýna í keppninni. Bergdís fékk strýhærðan vorsteh, Lovísa var með whippet, Stella með strýhærðan dachshund og Vaka með enskan pointer. Stelpurnar stóðu sig allar með prýði sem og þjálfari þeirra! Vaka komst áfram í tíu keppenda úrslit. Við óskum þeim öllum innilega til hamingju með frábæran árangur á erlendri grundu, þær voru Íslandi og HRFÍ til mikils sóma. |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|