Evrópusýningin í Herning 2023
Evrópusýningin fór fram að þessu sinni í Herning í Danmörk helgina 18.-21. maíi 2023.
Freyja Guðmundsdóttir var fullrúi okkar í lokakeppni ungra sýnenda þar sem hún endaði sem þriðji stigahæsti sýnandi í eldra flokki árið 2022.
Freyja keppti með hund af tegundinni Enskur Springer Spaniel. Stóð sig vel og var félaginu til sóma!
Freyja Guðmundsdóttir var fullrúi okkar í lokakeppni ungra sýnenda þar sem hún endaði sem þriðji stigahæsti sýnandi í eldra flokki árið 2022.
Freyja keppti með hund af tegundinni Enskur Springer Spaniel. Stóð sig vel og var félaginu til sóma!
Evrópusýningin í varsjá 2018
Evrópusýningin fór fram að þessu sinni í Varsjá í Póllandi helgina 11.-14. október 2018. Berglind Gunnarsdóttir var fulltrúi okkar í lokakeppni ungra sýnenda en hún var þriðji stigahæsti sýnandinn í eldri flokki eftir árið 2017. Hún sýndi hund af tegundinni Basenji og stóð sig vægast sagt frábærlegan og var félaginu til mikils sóma! Þetta var síðasta sýning Berglindar sem ungur sýnandi og óskum við henni innilega til hamingju með stórkostlegan feril!
Euro dog show í Brussels 2016
Evrópusýningin í Osló 2015
Hafdís Jóna Þórarinsdóttir náði þeim frábæra árangri að verða í 2. sæti í Evrópukeppni ungra sýnenda á Evrópusýningunni í Noregi í byrjun september. Hafdís sýndi flat-coated retriever og tók þátt í tveimur undankeppnum sem fram fóru fyrsta og annan dag sýningarinnar. Fyrri daginn var hún valin í undanúrslit en í seinni keppninni var hún valin, ásamt tveimur öðrum sýnendum, til að taka þátt í aðalkeppninni sem fór fram á síðasta degi sýningarinnar. Þess má geta að hátt í 50 sýnendur voru skráðir til leiks hvorn daginn. Í lokakeppninni tóku fulltrúar fjölmargra Evrópulanda þátt ásamt þeim sex sýnendum sem komust áfram úr undankeppnunum. Hafdís gerði sér lítið fyrir og varð í 2. sæti og er óhætt að segja að samkeppnin var ansi hörð! Dómari keppninnar var atvinnusýnandinn, Angela Lloyd frá Bandaríkjunum. Hún er einn þekktasti sýnandi Bandaríkjanna og átti glæsilegan feril sem ungur sýnandi á árum áður en þess má geta að hún sigraði alþjóðlega keppni ungra sýnenda á Crufts 1998.
Við óskum Hafdísi Jónu innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur!
Við óskum Hafdísi Jónu innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur!
Euro dog show 2014
Ekki fór fulltrúi út á Euro dog show 2014 í Tékklandi í október þar sem Tékkneski hundafélagið vildi ekki leyfa Ernu Sigríði (sem vann sér inn rétt þangað) þar sem hún varð 18 ára í júní. Tekin var sú ákvörðun að senda engan í stað hennar.
Euro Dog Show 2013
Euro Dog Show 2011
Evrópusýningin var haldin í Hollandi þann 4. maí 2011. Þórkatla Lunddal Friðriksdóttir var þriðji stigahæsti ungi sýnandinn eftir árið 2010 og keppti því fyrir okkar hönd. Þórkalta sýndi Beagle. Þórkatla náði þeim frábæra árangri að komast í 10 keppenda úrslit og óskum við henni innilegar hamingju óskir með það!