Haustfögnuður Ungmennadeildar fer fram laugardaginn 29. september í reiðhöll Andvara. Lítil kaffisala verður á staðnum í umsjón deildarinnar en við verðum því miður ekki með posa. Boðið verður upp á flokka fyrir alla áhugasama sýnendur en ungir sýnendur og fullorðinsflokkarnir verða með breyttu sniði að þessu sinni. Keppt verður í útsláttarkeppni í báðum hópum, ungir sýnendur frá 10-17 ára keppa í einum flokki og 18 ára og eldri keppa í öðrum flokki. Skipulag barnaflokkanna helst óbreytt, þeim er skipt niður í tvo flokka, 3-5 ára og 6-9 ára. Ekki verður raðað í sæti í þessum flokkum, allir fara heim sem sigurvegarar. Skipulag útsláttarkeppninnar: 1. Allir sýnendur koma inn í hringinn og er venjuleg rútína þar sem dómari 1 dæmir og velur svo átta keppendur áfram í undanúrslit. 2. Dómari 2 dæmir undanúrslitin og velur svo fjóra úr átta sýnenda hópnum áfram í úrslit. 3. Dómari 3 dæmir úrslitin og raðar sýnendum í 1.-4. sæti. Dómarar: Dómari í barnaflokkum verður Auður Sif Sigurgeirsdóttir Ungir sýnendur: 1. Edward Birkir Dóruson 2. Anja Björg Kristinsdóttir 3. Brynja Kristín Magnúsdóttir Fullorðinsflokkar: 1. Brynja Kristín Magnúsdóttir 2. Edward Birkir Dóruson 3. Anja Björg Kristinsdóttir. Þátttökugjald í barnaflokkum: 1.500.- kr. Þátttökugjald í ungum sýnendum og fullorðinsflokkum: 2.000.- kr. Þátttökuverðlaun veitt í barnaflokkum og ungum sýnendum! Vonumst til að sem flestir taki þátt í deginum með okkur en eins og við vitum öll þá er unga fólkið framtíð félagsins og vert er að nota hvert tækifæri til að auka áhuga þeirra á hundasportinu! Síðasti skráningardagur mánudagurinn 24. september!! Skráningargjald skal lagt inn á reikning nr. 0140-26-799 kt. 290399-2549 fyrir þann dag svo skráning sé gild. Vinsamlegast takið fram nafn þátttakanda í skýringu og sendið staðfestingu á greiðslu á netfangið [email protected] |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|