Nú þegar sýningarárið 2013 er á enda liggja fyrir lokastig og því listi yfir stigahæstu sýnendur ársins 2013.
Stigahæsti sýnandi í yngri flokki er Sigrún Sandra Valdimarsdóttir sem endaði með 130 stig! Óskum Sigrúnu innilega til hamingju með frábæran árangur. Stigahæstu sýnendurnir í eldri flokki eru eftirfarandi, ein þær mynda lið Íslands á Nordic Winner en þær halda til Helsinki 13. desember nk. og munu keppa 14. desember. 1.sæti - Theodóra Róbertsdóttir með 120 stig - Fulltrúi Íslands á Crufts 2014 + Nordic Winner 2. sæti - Hilda Björk Friðriksdóttir með 110 stig - Fulltrúi Íslands á Heimssýningunni 2014 + NW 3. sæti - Erna Sigríður Ómarsdóttir með 100 stig - Fulltrúi Íslands á Evrópusýningunni 2014 + NW 4. sæti - Jóhanna Líf Halldórsdóttir með 50 stig - Nordic Winner Óskum þeim innilega til hamingju og óskum þeim góðs gengis á keppnunum úti! Keppni ungra sýnenda fór fram 15. nóvember sl. á nóvembersýningu HRFÍ. Alls tóku þátt 27 ungmenni, 12 í yngri flokki og 15 í eldri. Dómari að þessu sinni var Tatjana Urek frá Slóvakíu.
Yngri flokkur: 1. sæti - Glódís Rún Sigurðardóttir með Australian shepherd 2. sæti - Agatha Elín Steinþórsdóttir með Chow chow 3. sæti - Sigrún Sandra Valdimarsdóttir með Papillon 4. sæti - Aldís Jóna Björgvinsdóttir með Coton de tulear Eldri flokkur: 1. sæti - Theodóra Róbertsdóttir með Australian shepherd 2. sæti - Jóhanna Líf Halldórsdóttir með Enskan springer spaniel 3. sæti - Hilda Björk Friðriksdóttir með Standard schnauzer 4. sæti - Erna Sigríður Ómarsdóttir með Afghan hound |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|