FULLBÓKAÐ er á námskeiðin! Skráning á biðlista HÉR!
Sýnendanámskeið fyrir hinn almenna sýnanda! Tammie Sommerson-Wilcox, atvinnusýnandi frá Bandaríkjunum, kemur til landsins í september og ætlar að halda námskeið til styrktar Ungmennadeildar HRFÍ þar sem ágóði rennur beint til deildarinnar. Hún hélt sambærileg námskeið í fyrra sem heppnuðust mjög vel og voru vel sótt. Tammie hefur sýnt og snyrt hunda úr öllum tegundahópum með góðum árangri og heldur reglulega námskeið í Bandaríkjunum. Námskeiðin verða haldin 16. og 17. september í TM reiðhöll Fáks í Víðidal (þar sem sýningin verður haldin), fimm sýnendur verða í hverjum hópi og kostar námskeiðið 6.500 kr. Hún mælir eindregið með því að sýnendur með einhvers konar „vandræðagemsa“ komi á námskeiðið. TAKMARKAÐ PLÁSS Í BOÐI! FULLBÓKAÐ er á námskeiðin! Skráning á biðlista HÉR! Keppni ungra sýnenda á júlísýningu HRFÍ fór fram á föstudag kl. 18 á sýningarsvæðinu í Víðidal. Að þessu sinni voru 17 ungmenni skráð til keppni og dómari var Denis Sabolic frá Króatíu. Denis valdi fjóra í verðlaunasæti í yngri flokki á föstudagskvöldinu en valdi fjóra í eldri flokki sem mættu og kepptu til úrslita á laugardeginum. Úrslit voru eftirfarandi: Yngri flokkur: 1. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með afghan hound - 40 stig 2. sæti - Kolbrún Jara Birgisdóttir með íslenskan fjárhund - 30 stig 3. sæti - Elena Mist Theodórsdóttir með amerískan cocker spaniel - 20 stig 4. sæti - Erlen Inga Guðmundsdóttir með papillon - 10 stig Eldri flokkur: 1. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með enskan springer spaniel - 40 stig 2. sæti - Vaka Víðisdóttir með siberian husky - 30 stig 3. sæti - Ingunn Birta Ómarsdóttir með shetland sheepdog - 20 stig 4. sæti - Margrét Hauksdóttir með afghan hound - 10 stig |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|