Til allra sem tókuð þátt í þessum frábæra degi með okkur - TAKK! Fjölmennt var í reiðhöll Fáks 23. október síðastliðinn, tilefnið var að fagna 20 ára afmælishátíð deildarinnar með degi Ungmennadeildar og Royal Canin styrktaraðila okkar. Skráning var frábær en mikið var um að vera þessa sömu helgi. Keppt var nokkrum flokkum, barnaflokkum (3-5 ára, 6-9 ára), ungum sýnendum (10-12 ára, 13-17 ára) og svo í Match show þar sem keppt var um besta parið. Dómarar voru Snærún Ynja, Anja Björg og Valdís V. - þökkum þeim kærlega fyrir að taka þátt með okkur. Landslið ungra sýnenda sá til þess að bjóða upp á ýmis góðgæti og happdrætti til styrktar liðsins sem heldur til Danmerkur nú í nóvember! Óskum við þeim góðs gengis! Úrslit: Barnaflokkur: allir sigurvegarar! Yngri flokkur ungra sýnenda: 1. Melkorka Ingibjörg Ástþórsdóttir með Australian Shepherd 2. Emilý Björk Kristjánsdóttir með Briard 3. Margrét Anna Lapas með Cavalier 4. Aníta Hlín Kristinsdóttir með Coton de Tulear Eldri flokkur ungra sýnenda: 1. Hrönn Valgeirsdóttir með Pudelpointer 2. Freyja Guðmundsdóttir með Afghan Hound 3. Eyrún Eva Guðjónsdóttir með Cavalier 4. Ágústína Líf Siljudóttir með Íslenskan Fjárhund Match show BIS 1. Karen Ösp Guðbjartsdóttir með PBGV úr opnum flokki 2. Þorbjörg Ásta Leifsdóttir með Íslenskan Fjárhund úr ungliða/unghunda flokki 3. Helga Kolbeinsdóttir með Tibetan Spaniel úr öldungaflokki 4. Hrafnhildur Björk Eggertsdóttir með Bearded Collie úr hvolpaflokki Til hamingju öll með daginn! Fleiri myndir frá deginum má finna á facebook síðu deildarinnar! |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|