Þá er síðasta sýning árins liðin og tími til þess að tilkynna stigahæstu sýnendur ársins.
Stigahæsti sýnandi ársins í yngri flokki er hún Eyrún Eva Guðjónsdóttir - innilega til hamingju með árangurinn! Stigahæsti sýnandi ársins í eldri flokki er Stefanía Stella Baldursdóttir og verður hún fulltrúi Íslands á Crufts í Birmingham og á Nordic Winner. 2. sæti - Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir er fulltrúi Íslands á Heimssýningunni í Madríd og á Nordic Winner 3. sæti - Elena Mist Theodórsdóttir er fulltrúi Íslands á Evrópusýningunni í Slóveníu og á Nordic Winner. Innilega til hamingju með árangurinn á árinu! Eftir tvöfalda sumarsýningu HRFÍ, helgina 24.-25. ágúst, var landslið ungra sýnenda tilkynnt, sem keppir fyrir hönd Íslands á Nordic Winner í Stokkhólmi, helgina 14.-15. desember. Ákveðið var að láta aðeins fyrstu þrjár sýningar ársins telja svo liðið fengi betri tíma til undirbúnings.
Landsliðið samanstendur af: Bergdísi Lilju Þorsteinsdóttur Elenu Mist Theodórsdóttur Snærúnu Ynju Hallgrímsdóttur Smith Stefaníu Stellu Baldursdóttur Þjálfari og fararstjóri verður: Rannveig Gauja Guðbjartsdóttir |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|