Dagur Unglingadeildar HRFÍ verður haldinn hátíðlegur sunnudaginn 12. apríl nk. í Gæludýr.is á Korputorgi og mun dagskráin hefjast kl. 12.30.
Deildin býður upp á keppnisflokka fyrir alla áhugasama sýnendur, börn, unglinga og fullorðna! Barnaflokkur ungra sýnenda (3-5 ára börn – árið gildir) Skráningargjald: 1.000 kr. Barnaflokkur ungra sýnenda (6-8 ára börn – árið gildir) Skráningargjald: 1.000 kr. Yngri flokkur ungra sýnenda (9-12 ára börn – árið gildir) Skráningargjald: 1.500 kr. Eldri flokkur ungra sýnenda (13-17 ára – árið gildir) Skráningargjald: 1.500 kr. Fullorðinsflokkur sýnenda (18 ára og eldri) Skráningargjald: 1.500 kr. Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 2. apríl! Skráningargjald skal lagt inn á reikning nr. 0140-26-000799 kt. 2903992549 (eigandi reiknings er Hafdís Jóna). Vinsamlegast takið fram nafn þátttakanda í „skýringu“ og sendið staðfestingu á greiðslu á netfangið [email protected]. Skrá þarf á sýningunna með því að fylla út eftirfarandi eyðublað sem hægt er að finna með því að smella HÉR. Mánudaginn 16. mars sl. var aðalfundur Unglingadeildar HRFÍ haldinn í skrifstofuhúsnæði HRFÍ. Góð mæting var á fundinn og margt rætt. Fyrst var ársskýrsla stjórnar lesin upp og samþykkt. Komið var svo að því að kjósa í nýja stjórn en úr stjórn að þessu sinni fóru Erna Sigríður Ómarsdóttir, Hilda Björk Friðriksdóttir og Theodóra Róbertsdóttir, einnig tók Jóhanna Líf Halldórsdóttir þá ákörðun að hætta í stjórn, þeim er þakkað fyrir vel unnin störf á stjórnarárinu 2014-2015. Hafdís Jóna Þórarinsdóttir situr enn inni til eins árs til viðbótar og gaf Hilda Björk kost á sér aftur til eins árs, Auður Sif Sigurgeirsdóttir gaf kost á sér til tveggja ára ásamt Ágústu Pétursdóttur og svo gaf Rannveig Gauja Guðbjartsdóttir kost á sér til eins árs. Ný stjórn ræddi svo ýmis málefni og hugmyndir við fundargesti.
Stjórnarmeðlimir í stjórn Unglingadeildar HRFÍ fyrir starfsárið 2015-2016 eru Auður Sif Sigurgeirsdóttir, Ágústa Pétursdóttir, Hafdís Jóna Þórarinsdóttir, Hilda Björk Friðriksdóttir (formaður stjórnar) og Rannveig Gauja Guðbjartsdóttir. Sjá nánar Fulltrúi okkar á Crufts að þessu sinni var Helga Þöll Guðjónsdóttir sem var stigahæsti sýnandinn í eldri flokki eftir sýningarárið 2014. Crufts er stærsta hundasýning í heimi og er haldin í Birmingham í Bretlandi og stóð að þessu sinni yfir dagana 5.-8. mars. Alþjóðleg keppni ungra sýnenda fór fram á laugardagsmorguninn og voru keppendur 45 talsins frá jafn mörgum löndum, sem er metskráning líkt og árið 2014. Dómarinn í ár var Elina Haapaniemi frá Finlandi. Helga Þöll keppti með snögghærða vorsteh rakkann Morgan, sem hún hitti klukkutíma fyrir keppni, og fékk shiba inu sem skipti hund.
Helga og Morgan náðu þeim glæsilega árangri að komast í 10 keppenda úrslit! Við óskum Helgu Þöll innilega til hamingju með þennan frábæra árangur en þetta var hennar síðasta keppni sem ungur sýnandi. Aðalfundur Unglingadeildar verður haldinn 16.mars kl 19:30 nk. í skrifstofuhúsnæði HRFÍ, Síðumúla 15.
Dagskrá fundarins: 1. Skýrsla stjórnar árið 2014-2015 lesin upp 2. Kosning í nýja stjórn 3. Önnur umræða Þrjú laus pláss eru í stjórn deildarinnar, tvö til tveggja ára og eitt til eins árs. Kosningarétt hafa meðlimir deildarinnar. Vonumst til að sjá sem flesta! Kær kveðja Stjórn Unglingadeildar HRFÍ 2014-2015 https://www.facebook.com/events/890644890985757/ |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|