Heimssýningin (World Dog Show 2023) er haldin þessa helgina í Geníva, Swiss.
Hann Maríus Þorri Ólason er fulltrúi Íslands í ungum sýnendum á morgun. Hann mun keppa með hundinn Fudge sem er af tegundinni Bracco Italiano.🥳 Hann keppir kl 10 á íslenskum tíma (kl 12 á staðar tíma) og fer svo inn í stóra hringinn seinna um daginn. Streymið frá úrslitum á morgun: https://www.youtube.com/watch?v=xfYZJ7-jT7Y Við óskum honum góðs gengis og sendum góða strauma!🥰 Skemmtifréttir!
Kynnum með stolti aðstoðaþjálfara landsliðs ungra sýnenda hana Brynju Kristínu! Þær Rannveig Gauja, þjálfari, og Brynja Kristín, aðstoðarþjálfari, munu leiða landslið ungra sýnenda 2023 á Nordic Winner sem haldin verður að þessu sinni á Íslandi í nóvember. Bjóðum Brynju velkomna í teymið og óskum þeim góðs gengis. Það gleður okkur að kynna landsliðshóp okkar í ungum sýnendum fyrir árið 2023!
Freyja Guðmundsdóttir Hrönn Valgeirsdóttir Jóhanna Sól Ingadóttir Eyrún Eva Guðjónsdóttir Það verður gaman að fylgjast með þessum hóp á Nordic Winner sem að þessu sinni verður haldin á Íslandi í nóvember Læt fylgja með myndi af þeim frá síðustu keppni. Sýningarnar fram að og með ágúst sýningu 2023 gilda til vals á landsliðshóp. BÚIÐ AÐ LOKA FYRIR SKRÁNINGU
Katrine Jeppesen, sem dæmir keppni ungra sýnenda á ágúst sýningunni, ætlar að halda námskeið fyrir unga sýnendur 14 ágúst. Námskeiðið verður í eitt skipti og hópum skipt í óvana og vana. Takmarkað pláss er í boði! Þeir sem eru skráðir til keppni ungra sýnenda hjá Katrine 12.08.2023 hafa forgang að námskeiðinu! Mánudagurinn 14. ágúst
Námskeiðið verður í húsnæði HRFÍ, Melabraut 17 Hafnarfirði Námskeiðið kostar 4.000 kr Skráning telst ekki gild fyrr en búið að millifæra inn á reikning deildarinnar. Millifæra skal námskeiðsgjaldið á reikning deildarinnar hjá HRFÍ: Reikningur 515-26-680481, kt. 680481-0249, setja nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected]! Frábært tækifæri sem ungir sýnendur mega ekki láta fram hjá sér fara! SKRÁNING HÉR |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|