Allir velkomnir - Biðjum þá sem vilja mæta að senda okkur póst svo við getum gert ráð fyrir fjölda :) Vonumst til að sjá sem flesta! Þá er komið að fyrstu æfingasýningunni í ár og verður hún haldin 5. apríl í Gæludýr.is á Koprutorgi. Að þessu sinni munum við bjóða upp á þrjá flokka, 5-8 ára, 9-12 ára og 13-17 ára. Sóley Ragna Ragnarsdóttir mun dæma 5-8 ára flokkinn, en þetta er eins konar æfingaflokkur þar sem allir fá að spreyta sig með hundana sína og allir fá verðlaun í lokin. Sóley Halla Möller mun svo dæma 9-12 ára flokkinn og 13-17 ára flokkinn og verður það hefbundin keppni. Ps. þessi keppni gildir EKKI til stiga í lok árs. Þátttökugjald í 5-8 ára flokkinn er 1000 kr. en í 9-12 og 13-17 ára flokkana 1500 kr. Hér fyrir neðan er útfyllanlegt skráningarblað sem sendist beint á okkur þegar það er ýtt á "Senda". Skráningarfrestur er til og með miðvikudeginum 26. mars. Bestu kveðjur, stjórn Unglingadeildar HRFÍ Crufts, stærsta hundasýning í heimi, var haldin 6.-9. mars sl. Alþjóðleg keppni ungra sýnenda var laugardaginn 8. mars þar sem Theodóra Róbertsdóttir, stigahæsti ungi sýnandinn eldri flokki, var fulltrúi okkar. Að þessu sinni var met skráning en 45 keppendur frá jafn mörgum löndum kepptu fyrir hönd sinna landa. Dómarinn í ár var Dr. Tamas Jakkel frá Ungverjalandi. Theodóra sýndi Samoyed rakkann Norsk og komust þau í top 10 sýnenda úrslit. Við óskum Theodóra til hamingju með frábæran árangur á Crufts en þetta var einnig seinasta sýning hennar sem ungur sýnandi. |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|