Unglingadeildin mun flytja inn frábæran sýnanda frá Svíþjóð, hana Pernillu Lindström.
Pernilla hefur áður haldið námskeið, nokkrum sinnum í Svíþjóð og svo í Finnlandi. En fyrir þá sem ekki vita hefur Pernilla náð ótrúlega góðum árangri og m.a. unnið sænsku úrslitin í ungum sýnendum tvisvar, unnið Nordic Winner bæði einstaklings og liðakeppnina, varð í öðru sæti á CRUFTS og verið í hópi 6 bestu á evrópu og heimssýningum. Pernilla sýnir hunda úr öllum tegundarhópum en hún hefur náð ótrúlegum árangri með Saluki en hún á ástralskan fjárhund sjálf. Pernilla kemur til með að dæma Unga sýnendur á sumarsýningu HRFÍ og halda sýnendanámskeið fyrir hinn almenna sýndanda á vegum Unglingadeildarinnar, (Þeir sem taka þátt í ungum sýnendum hafa því miður ekki leyfi til að mæta á það námskeið). Námskeiðið stendur í 1,5 tíma og skiptist í byrjendur og vana. Það mun kosta AÐEINS 6.000kr- á námskeiðið og er takmarkaður fjöldi sem kemst á það. Námskeiðið verður haldið 18.júní og verða byrjendur kl 18:00-19:30 og vanir kl 20:00-21:30. Skráning er hafin á [email protected] og þarf að koma fram eftirfarandi: Nafn þátttakanda, netfang, símanúmer og hvort verið er að skrá sig í vana eða byrjendur. Með von um góðar undirtektir stjórn Unglingadeildar HRFÍ! |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|