Í dag var undirritaður samstarfssamningur Ungmennadeildar HRFÍ og Gæludýr.is. Deildin hlakkar til komandi tíma og ná að láta æskulýðsstarfið blómstra með stuðningi Gæludýr.is.
Vinna er hafin við skemmtilega dagskrá fyrir árið með þjálfunum, námskeiðum, degi Ungmennadeildar og ýmsu hópefli fyrir meðlimi deildarinnar. Hlökkum til að deila með ykkur fréttum bráðlega. Dagur Ungmennadeildar HRFÍ og Royal Canin verður haldinn hátíðlegur þann 28. október n.k.
Í þetta skipti verður Landslið Ungra Sýnenda með fjáröflun fyrir Norðurlandamótið sem haldið verður á Íslandi í nóvember! Stelpurnar í landsliðinu munu dæma barna- og fullorðinsflokka og munu þau skráningargjöld fara beint til styrktar landsliðsins! Boðið verður upp á: Barnaflokkur 3-5 ára (fjáröflun f. landslið) Dómari: Eyrún Eva Guðjónsdóttir Barnaflokkur 6-9 ára (fjáröflun f. landslið) Dómari: Hrönn Valgeirsdóttir Yngri flokkur 10-12 ára Dómari: Ingunn Birta Ómarsdóttir Eldri flokkur 13-17 ára Dómari: Ingunn Birta Ómarsdóttir Fullorðins flokkur 18-34 ára (fjáröflun f. landslið) Dómari: Jóhanna Sól Ingadóttir Fullorðins flokkur 35+ ára (fjáröflun f. landslið) Dómari: Freyja Guðmundsdóttir Stefnum á að byrja daginn kl 9:30-10:00, fer eftir fjölda skráninga! Þátttökugjöld: Barnaflokkar (yngri og eldri) 1.500kr Ungir sýnendur (yngri og eldri) 2.000kr Fullorðinsflokkur (yngri og eldri) 2.500kr Staðsetning: Melabraut 17, Hfj, húsnæði HRFÍ Tímasetning auglýst síðar SKRÁNING HÉR Ungmennadeildin ætlar að bjóða krökkum og ungmennum á aldrinum 9-17 ára að koma á fræðslu og skemmtikvöld!
Við ætlum að vera með fræðslu um byggingu hunda, tegundahópa, fá okkur pizzu, spila og eiga góða stund saman! Þetta er foreldra og hunda laust kvöld. Veitingar eru í boði deildarinnar. Hlökkum til að sjá ykkur öll! SKRÁNING HÉR Heimssýningin (World Dog Show 2023) er haldin þessa helgina í Geníva, Swiss.
Hann Maríus Þorri Ólason er fulltrúi Íslands í ungum sýnendum á morgun. Hann mun keppa með hundinn Fudge sem er af tegundinni Bracco Italiano.🥳 Hann keppir kl 10 á íslenskum tíma (kl 12 á staðar tíma) og fer svo inn í stóra hringinn seinna um daginn. Streymið frá úrslitum á morgun: https://www.youtube.com/watch?v=xfYZJ7-jT7Y Við óskum honum góðs gengis og sendum góða strauma!🥰 Skemmtifréttir!
Kynnum með stolti aðstoðaþjálfara landsliðs ungra sýnenda hana Brynju Kristínu! Þær Rannveig Gauja, þjálfari, og Brynja Kristín, aðstoðarþjálfari, munu leiða landslið ungra sýnenda 2023 á Nordic Winner sem haldin verður að þessu sinni á Íslandi í nóvember. Bjóðum Brynju velkomna í teymið og óskum þeim góðs gengis. Það gleður okkur að kynna landsliðshóp okkar í ungum sýnendum fyrir árið 2023!
Freyja Guðmundsdóttir Hrönn Valgeirsdóttir Jóhanna Sól Ingadóttir Eyrún Eva Guðjónsdóttir Það verður gaman að fylgjast með þessum hóp á Nordic Winner sem að þessu sinni verður haldin á Íslandi í nóvember Læt fylgja með myndi af þeim frá síðustu keppni. Sýningarnar fram að og með ágúst sýningu 2023 gilda til vals á landsliðshóp. BÚIÐ AÐ LOKA FYRIR SKRÁNINGU
Katrine Jeppesen, sem dæmir keppni ungra sýnenda á ágúst sýningunni, ætlar að halda námskeið fyrir unga sýnendur 14 ágúst. Námskeiðið verður í eitt skipti og hópum skipt í óvana og vana. Takmarkað pláss er í boði! Þeir sem eru skráðir til keppni ungra sýnenda hjá Katrine 12.08.2023 hafa forgang að námskeiðinu! Mánudagurinn 14. ágúst
Námskeiðið verður í húsnæði HRFÍ, Melabraut 17 Hafnarfirði Námskeiðið kostar 4.000 kr Skráning telst ekki gild fyrr en búið að millifæra inn á reikning deildarinnar. Millifæra skal námskeiðsgjaldið á reikning deildarinnar hjá HRFÍ: Reikningur 515-26-680481, kt. 680481-0249, setja nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected]! Frábært tækifæri sem ungir sýnendur mega ekki láta fram hjá sér fara! SKRÁNING HÉR Reynsluboltarnir Auður Sif og Ágústa ætla að halda námskeið fyrir unga sýnendur 8. og 9. ágúst n.k.
Námskeiðið verður í tvö skipti og hópum skipt í vana og óvana sýnendur. Takmarkað pláss er í boði! Þriðjudaginn 8. ágúst
Námskeiðið verður í húsnæði HRFÍ, Melabraut 17 Hafnarfirði Námskeiðið kostar 6.000 kr Skráning telst ekki gild fyrr en búið að millifæra inn á reikning deildarinnar. Auður Sif og Ágústa eru báðar með margra ára reynslu sem fyrrum ungir sýnendur og sýnendur inní dómhring. Frábært tækifæri sem ungir sýnendur mega ekki láta fram hjá sér fara! SKRÁNING HÉR Brynja ætlar að halda eina æfingu laugardaginn 24. júní áður en við skellum okkur í sumarfrí!
Upplýsingar og skráning má finna hér: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSc3-sDOXA54zIl0IoabBZZuLnL1IaX4snXhtmon3M7OeHf5jw/viewform?usp=sf_link Fimmtudaginn 9. febrúar ætlar ungmennadeildin að halda uppskeruhátíð og bjóða ungum sýnendum í keilu og pizzapartý í Egilshöll. Keilan hefst kl 18:00 og svo í beinu framhaldi verður boðið upp á pizzahlaðborð. Hlökkum til að sjá ykkur! :) Vinsamlegast skráið ykkur hér að neðan: |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|