Eldri flokkurinn
Æfingakeppni Unglingadeildarinnar var haldin í þriðja sinn og heppnaðist mjög vel og var dómari að þessu sinni Auður Sif Sigurgeirsdóttir. Alls kepptu 11 sýnendur 3 í yngri og 8 í eldri. Úrslit voru eftirfarandi: Yngri flokkur: 1. sæti - Agatha Elín Steinþórsdóttir með Papillon 2. sæti - Ragnar Líndal Sigurfinnsson með Amerískan Cocker 3. sæti - Hildur Ása Halldórsdóttir með Cavalier Eldri flokkur: 1. sæti - Erna Sigríður Ómarsdóttir með Sheltie 2. sæti - Jóhanna Líf Halldórsdóttir með Miniature Schnauzer 3. sæti - Theodóra Róbertsdóttir með Australian Shepherd 4. sæti - Helga Þöll Guðjónsdóttir með Saluki Á stjórnarfundi stjórnar Hundaræktarfélags Íslands þann 1. febrúar 2012 var samþykkt að breyta sýningarreglum um unga sýndendur. Breytingarnar eru rauðletraðar:
60. Skráning í keppni ungra sýnenda verður að vera á sér skráningarblaði sem fæst á skrifstofu HRFÍ. Einnig er hægt að skrá sig með tölvupósti. Skráning telst ekki gild nema allar upplýsingar séu til staðar á skráningarblaði og að greiðsla hafi borist áður en skráningafresti lýkur. 3. Stigaútreikningur fyrir stigahæsta unga sýnanda ársins Stig eru aðeins gefin á opnum ræktunarsýningum félagsins á viðkomandi almanaksári, þar sem allar hundategundir geta tekið þátt. Stigahæstu ungu sýnendur ársins í yngri og eldri flokki eru heiðraðir á síðustu sýningu hvers árs. Stigagjöf fyrir unga sýnendur yngri og eldri flokki: 1. sæti: 40 stig 2. sæti: 30 stig 3. sæti: 20 stig 4. sæti: 10 stig Bráðabani Ef tveir keppendur eru jafnir að stigum í lok árs sem stigahæstu ungu sýnendur ársins þarf að efna til bráðabana til að úrskurða hver keppir fyrir hönd HRFÍ á Crufts eða annarri sýningu. Komi til bráðabana tilnefnir stjórn Unglingadeildar hlutlausan aðila til að sjá um framkvæmdina. Keppendur byrja á því að koma með hund að eigin vali inn í hringinn. Keppendur fá síðan skiptihunda af sömu tegund, sem þeir þekkja ekki. Annar dómari en sá sem dæmdi keppnina dæmir bráðabana. |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|