Dagur Ungmennadeildar HRFÍ verður haldinn hátíðlegur sunnudaginn 10. apríl nk. í Gæludýr.is á Korputorgi. Kaffisala verður á staðnum í umsjón deildarinnar en deildin verður því miður ekki með posa.
Keppt verður í flokkum barna, ungra sýnenda og eldri sýnenda og verða flokkarnir eftirfarandi: - Börn 3-5 ára - Börn 6-8 ára - Yngri flokkur ungra sýnenda 9-12 ára - Eldri flokkur ungra sýnenda 13-17 ára - Fullorðinsflokkur 18-34 ára - Fullorðinsflokkur 35 ára og eldri Þátttökugjald í barnaflokkum: 1.000.- kr. Þátttökugjald í ungum sýnendum og fullorðinsflokkum: 1.500.- kr. Þátttökuverðlaun verða veitt í öllum flokkum! Dómari í barnaflokkum verður Erna Sigríður Ómarsdóttir Dómari í yngri og eldri flokki verður Elín Rós Hauksdóttir Dómari í fullorðinsflokkunum verður Ágústa Pétursdóttir Vonumst til að sem flestir taki þátt í deginum með okkur en eins og við öll vitum þá er unga fólkið framtíð félagsins og vert er að nota hvert tækifæri til að auka áhuga þeirra á hundasportinu! Síðasti skráningardagur föstudagurinn 1. apríl!! Skráningargjald skal lagt inn á reikning nr. 322-26-9229 kt. 090792-2029 fyrir þann dag svo skráning sé gild. Vinsamlegast takið fram nafn þátttakanda í "skýringu" og sendið staðfestingu á greiðslu á netfangið [email protected] Uppfært 9:35 02.04.16 Búið er að loka fyrir skráningu Hafdís Jóna Þórarinsdóttir, stigahæsti ungi sýnandinn eftir árið 2015, var fulltrúi okkar á Crufts sem haldin var 10.-13. mars síðastliðinn, en Crufts er stærsta hundasýning í heima og er haldin í Birmingham í Bretlandi á hverju ári. Í ár voru 45 keppendur skráðir frá jafn mörgum löndum í alþjóðlega keppni ungra sýnenda sem fór fram laugardagsmorguninn 12. mars. Dómari var Barbara Müller frá Sviss að þessu sinni. Hafdís Jóna fékk ensku springer spaniel tíkina Bridget til að sýna en hún hitti hana klukkutíma fyrir keppnina en í skiptum fékk hún shiba inu rakka.
Hafdís og Bridget náðu þeim frábæra árangri að komast í 10 keppenda úrslit! Við óskum Hafdísi innilega til hamingju með þennan árangur! Fyrsta sýning ársins fór fram 26.-28. febrúar sl. og fór keppni ungra sýnenda fram föstudagskvöldið 26. febrúar. Alls voru 28 ungmenni skráð að þessu sinni og var dómari Marc Linnér. Yngri flokkur: 1. sæti - Hrönn Valgeirsdóttir með íslenskan fjárhund - 40 stig 2. sæti - Snærún Ynja Halldórsdóttir með labrador - 30 stig 3. sæti - Herdís Heiða Jing Guðjohnsen með papillon - 20 stig 4. sæti - Erlen Inga Guðmundsdóttir með labrador - 10 stig Eldri flokkur: 1. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með enskan springar spaniel - 40 stig 2. sæti - Elena Mist Theodórsdóttir með silky terrier - 30 stig 3. sæti - Ylfa Dögg Ástþórsdóttir með australian shepherd - 20 stig 4. sæti - Vaka Víðisdóttir með australian shepherd - 10 stig |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|