Dagur Ungmennadeildar HRFÍ var haldinn hátíðlegur sunnudaginn 10. apríl í Gæludýr.is á Korputorgi. Börnum á aldrinum 3-5 ára og 6-8 ára gafst tækifæri til að spreyta sig í sýningarhring með fjórfætta vini sína ásamt því að keppt var í yngri og eldri flokki ungra sýnenda og fullorðinsflokkum 18-35 ára og 35 ára og eldri. Skráning fór fram úr björtustu vonum en tæplaega 90 skráningar bárust frá þátttakendum á öllum aldri! Dómarar voru Erna Sigríður Ómarsdóttir (barnaflokkar), Elín Rós Hauksdóttir (ungir sýnendur) og Ágústa Pétursdóttir (fullorðinsflokkar) og er þeim færðar bestu þakkir fyrir. Stjórn Ungmennadeildar HRFÍ þakkar Dýrheimum ehf. fyrir frábær verðlaun og þátttökuverðlaun, Gæludýr.is fyrir gestrisnina, Melabúðinni fyrir glæsilega vinninga í fullorðinsflokkum og öllum þeim sem lögðu hönd á plóg við undirbúning, tóku þátt eða mættu til að fylgjast með þessum skemmtilega viðburði. Deildin mun svo sannarlega halda áfram að standa fyrir viðburðum sem þessum í framtíðinni og mun gera sitt allra besta til að halda utan um barna- og unglingastarfið og hvetja þau yngstu til að vera með í hundasportinu. Úrslit voru eftirfarandi: Yngri flokkur: 1. sæti - Fanney Rún Guðmundsdóttir með tíbet spaniel 2. sæti - Hrönn Valgeirsdóttir með íslenskan fjárhund 3. sæti - Freyja Guðmundsdóttir með labrador 4. sæti - Herdís Heiða Jing Guðjohnsen Eldri flokkur: 1. sæti - Ingunn Birta Ómarsdóttir með shetland sheepdog 2. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með american cocker spaniel 3. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með maltese 4. sæti - Ylfa Dögg Ástþórsdóttir með australian shepherd Fullorðinsflokkur 18-34 ára: 1. sæti - Hilda Björk Friðriksdóttir með siberian husky 2. sæti - Valdís Vignisdóttir með afghan hound 3. sæti - Anna Dís Arnarsdóttir með pug 4. sæti - Anja Björg Kristinsdóttir Fullorðinsflokkur 35 ára +: 1. sæti - Sigurgeir Þráinn Jónsson með tibet spaniel 2. sæti - Arnheiður Runólfsdóttir með papillon 3. sæti - Kristín Helgadóttir með australian shepherd 4. sæti - Anna Vigdís Gísladóttir með border terrier Fleiri myndir er hægt að finna HÉR |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|