|
Desember mánuður var fullur af fjöri með okkar ungmennum!
Deildin hélt hina árlegu Jóla-keilu þann 5. desember þar sem krakkarnir komu saman að spila keilu, borða pizzu og njóta samvista! Auk þess var haldinn Dagur Ungmennadeildar 29. desember. Boðið var upp á barnaflokka og keppni ungra sýnenda! Við þökkum fyrir góða skráningu og skemmtilegan dag :D Myndir fá deginum koma á facebook síðuna okkar á næstu dögum. Um kvöldið 29. desember var svo uppskeruhátíð fyrir unga sýnendur! Við fengum okkur góðan mat, horfðum á keppni ungra sýnenda frá USA og svo keppt í skemmtilegum Kahoot spurningarleikjum. Æskulýðsnefnd langar að þakka kærlega fyrir alla þátttöku á árinu 2024. Ungmennadeild er full af flottum, skemmtilegum og duglegum krökkum! Auk þess sendum við sérstakar þakkir til Gæludýr.is sem hefur stutt vel við deildina! Hugo og Francesca dæmdu keppni ungra sýnenda á júní sýningu Hundaræktunarfélag Íslands.
Á mánudeginum 10. júní voru þau með námskeið fyrir þau sem voru skráð í keppni ungra sýnenda hjá þeim um helgina. Svo borðuðum við öll pizzu saman sem var í boði Gæludýr.is, þökkum þeim kærlega fyrir! Þökkum fyrir skemmtilegt kvöld með ykkur öllum! Ótrúlega gaman að sjá öll þessi flottu ungmenni okkar! Nokkrar myndir frá viðburðinum :D Hún Auður Sif var með sýnendanámskeið fyrir bæði byrjendur og lengra komna 28. og 29. maí.
Það var fullt á námskeiðið og var innilega gaman að fylgjast með frábærum sýnendum í bæði byrjenda hópnum og lengra komna hópnum! Þökkum Auði Sif kærlega fyrir þetta skemmtilega námskeið! Allur ágóði af námskeiðinu rann til deildarinnar :D Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndir úr báðum hópum Ný nefnd er:
Hilda Björk Friðriksdóttir - formaður Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir - ritari Elín Edda Alexandersdóttir - gjaldkeri Maríus Þorri Ólason - meðstjórnandi Freyja Guðmundsdóttir - meðstjórnandi Við viljum þakka Hrönn Valgeirsdóttir kærlega fyrir samstarfið á síðasta ári í nefndinni! Dagur Ungmennadeildar HRFÍ var haldinn hátíðlega 26.05.2024 í húsnæði HRFÍ
Við viljum þakka kærlega fyrir samveruna á einstaklega skemmtilegum degi! Alveg yndislegt að sjá sýnendur á öllum aldri njóta sín inn í hringnum og erum við sannarlega ánægð með fjöldi þátttakanda sem komu að eyða deginum með okkur :D Viljum þakka, Maríus, Freyju, Jóhönnu og Bergdísi fyrir að dæma! Auk þess viljum við þakka styrktaraðla Ungmennadeildar, Gæludýr.is fyrir þeirra ómetanlega stuðning! Myndir frá Dag Ungmennadeildar eru komnar inná Facebook síðu deildarinnar Við í Æskulýðsnefnd viljum þakka kærlega fyrir góða þátttöku á fyrirlestri hjá Auði Sif!
Auður Sif var með frábæran og gagnlegan fyrirlestur um byggingu hunda og afhverju það er mikilvægt að þekkja byggingu hunda sem sýnandi. Þökkum Auði Sif kærlega fyrir skemmtilegt og fróðlegt erindi. Yndislegt kvöld með góðum hundafólki og nasli í boði Gæludýr.is! Í dag var undirritaður samstarfssamningur Ungmennadeildar HRFÍ og Gæludýr.is. Deildin hlakkar til komandi tíma og ná að láta æskulýðsstarfið blómstra með stuðningi Gæludýr.is.
Vinna er hafin við skemmtilega dagskrá fyrir árið með þjálfunum, námskeiðum, degi Ungmennadeildar og ýmsu hópefli fyrir meðlimi deildarinnar. Hlökkum til að deila með ykkur fréttum bráðlega. Dagur Ungmennadeildar HRFÍ og Royal Canin verður haldinn hátíðlegur þann 28. október n.k.
Í þetta skipti verður Landslið Ungra Sýnenda með fjáröflun fyrir Norðurlandamótið sem haldið verður á Íslandi í nóvember! Stelpurnar í landsliðinu munu dæma barna- og fullorðinsflokka og munu þau skráningargjöld fara beint til styrktar landsliðsins! Boðið verður upp á: Barnaflokkur 3-5 ára (fjáröflun f. landslið) Dómari: Eyrún Eva Guðjónsdóttir Barnaflokkur 6-9 ára (fjáröflun f. landslið) Dómari: Hrönn Valgeirsdóttir Yngri flokkur 10-12 ára Dómari: Ingunn Birta Ómarsdóttir Eldri flokkur 13-17 ára Dómari: Ingunn Birta Ómarsdóttir Fullorðins flokkur 18-34 ára (fjáröflun f. landslið) Dómari: Jóhanna Sól Ingadóttir Fullorðins flokkur 35+ ára (fjáröflun f. landslið) Dómari: Freyja Guðmundsdóttir Stefnum á að byrja daginn kl 9:30-10:00, fer eftir fjölda skráninga! Þátttökugjöld: Barnaflokkar (yngri og eldri) 1.500kr Ungir sýnendur (yngri og eldri) 2.000kr Fullorðinsflokkur (yngri og eldri) 2.500kr Staðsetning: Melabraut 17, Hfj, húsnæði HRFÍ Tímasetning auglýst síðar SKRÁNING HÉR Ungmennadeildin ætlar að bjóða krökkum og ungmennum á aldrinum 9-17 ára að koma á fræðslu og skemmtikvöld!
Við ætlum að vera með fræðslu um byggingu hunda, tegundahópa, fá okkur pizzu, spila og eiga góða stund saman! Þetta er foreldra og hunda laust kvöld. Veitingar eru í boði deildarinnar. Hlökkum til að sjá ykkur öll! SKRÁNING HÉR Heimssýningin (World Dog Show 2023) er haldin þessa helgina í Geníva, Swiss.
Hann Maríus Þorri Ólason er fulltrúi Íslands í ungum sýnendum á morgun. Hann mun keppa með hundinn Fudge sem er af tegundinni Bracco Italiano.🥳 Hann keppir kl 10 á íslenskum tíma (kl 12 á staðar tíma) og fer svo inn í stóra hringinn seinna um daginn. Streymið frá úrslitum á morgun: https://www.youtube.com/watch?v=xfYZJ7-jT7Y Við óskum honum góðs gengis og sendum góða strauma!🥰 |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
January 2025
Categories
All
|










































































RSS Feed