Sýningarþjálfanir Unglingadeildarinnar
eru að hefjast á ný fyrir júní sýninguna og verða eftirfarandi daga: Sunnudagurinn 6.maí 12:00 ungir sýnendur 13:00 grúbba 1,2,3,4/6 og 9 14:00 grúbba 5,7,8,10 Sunnudagurinn 13. maí 12:00 ungir sýnendur 13:00 grúbba 1,2 og 3 14:00 grúbba 4/6,5 og 9 15:00 grúbba 7,8 og 10 Sunnudagurinn 20. maí 12:00 ungir sýnendur 13:00 grúbba 1,2 og 3 14:00 grúbba 4/6,5 og 9 15:00 grúbba 7,8 og 10 Sýningarþjálfunin er í Gæludýr.is á korputorgi Sunnudagana 13. og 20. maí verða einnig sýningarþjálfanir á vegum deildarinnar en staðsetning og tímasetning hefur ekki ennþá verið ákveðin. Setjum það hingað inn sem fyrst. Veistu ekki hvaða grúbbu hundurinn þinn er í ? Kíktu hér: http://www.hrfi.is/Default.asp?page=294 Við mælum með þessum þjálfunum fyrir byrjendur og lengra komna. Allir velkomnir! Mikilvægt er að koma með sýningartaum, nammi eða dót fyrir hundinn í verðlaun og svo auðvitað kúkapoka ef að slys verða inni :) Að venju kostar hvert skipti 500 kr.- og rennur sá peningur óskiptur til þess að styrkja keppendur Unglingadeildarinna erlendis. En Unglingadeildin með dyggri aðtoð HRFÍ, Pedigree og Royal Canin senda fulltrúa á helstu sýningar erlendis. Sá ungi sýnandi sem er stigahæstur eftir árið í eldri flokk keppir á Crufts. Annar stigahæsti ungi sýnandinn í eldri flokk keppir á Heimssýningunni og þriðji stigahæsti ungi sýnandinn í eldri flokk keppir á Evrópusýningunni. Síðan fer lið skipað fjórum stigahæstu ungu sýnendunum úr eldri flokk á Norðurlandakeppni ungra sýnenda. ATH. - Mikilvægt er að mæta á réttum tíma svo æfingarnar geti byrjað á tilsettum tíma. Hlökkum til að sjá ykkur! Bestu kveðjur, Stjórn Unglingadeildar HRFÍ. |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|