Eftir úrslit ágústsýningar HRFÍ myndaðist Nordic Winner lið Íslands sem mun keppa á Nordic Winner sem haldin verður í Lillestrøm, Noregi 16. nóvember næstkomandi. Í liðinu eru stigahæstu fjórir sýnendur í eldri flokki en liðið í ár skipa: Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir Lovísa Helenudóttir Stefanía Stella Baldursdóttir Vaka Víðisdóttir Rannveig Gauja Guðbjartsdóttir mun fylgja þeim út sem þjálfari og liðstjóri og mun vera þeim innan handar í keppninni sem og ferðinni. Við óskum stelpunum góðs gengis á Nordic Winner í nóvember! Á sama tíma viljum við þakka Auði Sif Sigurgeirsdóttur fyrir sín störf síðastliðin 12 árin, hún var ávallt til staðar og spilar hún stórt hlutverk í árangri landliðsins um árin! Á sýningunni var hún heiðruð af öllum þeim sem höfðu verið í liðinu með gjöf.
Ágústsýning HRFÍ var haldin 24.-26. ágúst síðastliðinn á Víðistaðatúni í Hafnarfirði. Dómari að þessu sinni var atvinnusýnandinn Tammie Sommerson-Wilcox frá Bandaríkjunum og voru 22 ungmenni skráð til leiks. Yngri flokkur: 1. sæti - Hrönn Valgeirsdóttir með irish soft coated wheaten terrier 2. sæti - Freyja Guðmundsdóttir með tíbet spaniel 3. sæti - Signý Lind Júlíusdóttir með franskan bulldog 4. sæti - Tanja Björk Adamsdóttir með tíbet spaniel Eldri flokkur: 1. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með pug 2. sæti - Lovísa Helenudóttir með whippet 3. sæti - Vaka Víðisdóttir með afghan hound 4. sæti - Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir með strýhærðan vorsteh Fleiri myndir frá keppni ungra sýnenda má sjá HÉR Helgina 9. - 12. ágúst fór fram Heimsýningin í Amsterdam í Hollandi. Þar átti Ísland tvo keppendur í opnu keppnunum og fulltrúa Íslands í úrslitunum á sunnudeginum. Vaka Víðisdóttir og Stefanía Stella Baldursdóttir kepptu í opnu keppnunum á föstudeginum, laugardeginum og sunnudeginum með góðum árangri. Stefanía Stella sýndi hund af tegundinni tíbet spaníel og komst tvisvar sinnum í undanúrslit og Vaka Víðisdóttir sýndi ástralskan fjárhund og komst í 10 keppenda úrslit á sunnudeginum. Frábær árangur hjá þeim! Á sunnudeginum keppti fulltrúi Íslands, Ingunn Birta Ómarsdóttir, í úrslitunum. Dómari keppninnar var Zeljka fon Zidar frá Slóveníu. Hún sýndi rakkan Legolas af tegundinni White Swiss Shepherd. Ingunn stóð sig með glæsibrag og komst alla leið í 10 keppenda úrslit af yfir 40 keppendum! Frábær endir á ungra sýnenda ferli hennar. Stelpurnar voru Íslandi og HRFÍ til mikils sóma og óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn! |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|