Dagur Ungmennadeildar fer fram á morgun (26. mars) í Gæludýr.is á Korputorgi.
Tæplega 80 þátttakendur eru skráðir til leiks! Deildin verður með veitingasölu á staðnum en þó ekki með posa þannig að við mælum með að fólk komi með pening. Tímaáætlun - Athugið að áætlunin getur breyst án fyrirvara og þess vegna er gott að miða við að vera komin/n á staðinn um 45 mínútum fyrir áætlaðan tíma. Húsið opnar kl. 12.00. Börn 3-5 ára - Kl. 12:30 Börn 6-8 ára - Kl. 13:00 Yngri flokkur - Kl. 13:30 Eldri flokkur - Kl. 14:30 Fullorðinsflokkur 18-34 ára - Kl. 15:30 Fullorðinsflokkur 35 ára+ - Kl. 16:30 Hlökkum til að sjá sem flesta! Hafdís Jóna Þórarinsdóttir, stigahæsti ungi sýnandinn árið 2016, var fulltrúi okkar á Crufts sem haldin var 9.-12. mars síðastliðinn, en Crufts er stærsta hundasýning í heimi og er haldin í Birmingham í Bretlandi ár hvert. Í ár voru 45 keppendur skráðir frá jafn mörgum löndum í alþjóðlegu keppni ungra sýnenda sem fór fram laugardagsmorguninn 11. mars. Dómari keppninnar var Vesa Lehtonen frá Finnlandi að þessu sinni. Hafdís Jóna fékk 15 mánaða gamla beagle rakkann Sam til þess að sýna en hún hitti hann klukkutíma fyrir keppni en í skiptum fékk hún tíu mánaða gömlu english pointer tíkina Babs. DAGUR UNGMENNADEILDAR 26. MARS
Skráning er hafin! Síðasti skráningadagur er 22. mars! Við hvetjum ALLA - börn, unglinga og fullorðna - til að vera með og spreyta sig í hringnum! Frábær þjálfun og reynsla fyrir sýnendur jafnt sem hunda. Ath! Hundar verða að vera a.m.k. 9 mánaða gamlir á sýningadag. Dómarar: Barnaflokkar: Berglind Gunnarsdóttir Ungir sýnendur: Jóhanna Líf Halldórsdóttir Fullorðinsflokkar: Hafdís Jóna Þórarinsdóttir Greiðsla þarf að fylgja skráningu svo hún sé gild Barnaflokkar: 1.000 kr. Yngri og eldri flokkur: 1.500 kr. Fullorðinsflokkar: 1.500 kr. Millifæra skal inn á eftirfarandi reikning, skrifa nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected] Reikn. 0140-26-799 Kt. 2903992549 Búið er að loka fyrir skráningu Sýningaárið 2017 byrjaði með stæl á Norðurljósasýningu HRFÍ sem haldin var daganna 3.-5. mars. Keppni ungra sýnenda fór fram föstudagskvöldið 3. mars. Dómari að þessu sinni var Daníel Örn Hinriksson frá Íslandi en 32 ungmenni tóku þátt. Yngri flokkur: 1. sæti - Hrönn Valgeirsdóttir með amerískan cocker spaniel - 40 stig 2. sæti - Herdís Heiða Jing Guðjohnsen með papillon - 30 stig 3. sæti - Maríus Þorri Ólason með labrador retriever - 20 stig 4. sæti - Snæfríður Ásta Jónasdóttir með australian shepherd - 10 stig Eldri flokkur: 1. sæti - Berglind Gunnarsdóttir með siberian husky - 40 stig 2. sæti - Vaka Víðisdóttir með australian shepherd - 30 stig 3. sæti - Birgitta Ýr Bjarkadóttir með australian shepherd - 20 stig 4. sæti - Ingunn Birta Ómarsdóttir með tíbetan spaniel - 10 stig Hægt er að smella á myndirnar til að sjá þær stærri en fleiri myndir er hægt að finna HÉR! |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|