Dagur Ungmennadeildar HRFÍ var haldinn hátíðlegur sunnudaginn 25. september í Gæludýr.is á Korputorgi.
Börnum á aldrinum 3-5 ára og 6-8 ára gafst tækifæri til að spreyta sig í sýningarhring með fjórfætta vini sína ásamt því að keppt var í yngri og eldri flokki ungra sýnenda og fullorðinsflokkum 18-34 ára og 35 ára og eldri. Skráning fór fram úr björtustu vonum en rúmlega 80 skráningar bárust frá þátttakendum á öllum aldri! Dómarar voru Hafdís Jóna Þórarinsdóttir (barnaflokkar), Karen Ösp Guðbjartsdóttir (ungir sýnendur) og Erna Sigríður Ómarsdóttir (fullorðinsflokkar) og er þeim færðar bestu þakkir fyrir. Stjórn Ungmennadeildar HRFÍ þakkar Dýrheimum ehf. fyrir frábær verðlaun og þátttökuverðlaun, Gæludýr.is fyrir gestrisnina, Melabúðinni fyrir glæsilega vinninga í fullorðinsflokkum og öllum þeim sem lögðu hönd á plóg við undirbúning, tóku þátt eða mættu til að fylgjast með þessum skemmtilega viðburði. Deildin mun svo sannarlega halda áfram að standa fyrir viðburðum sem þessum í framtíðinni og mun gera sitt allra besta til að halda utan um barna- og unglingastarfið og hvetja þau yngstu til að vera með í hundasportinu. Úrslit voru eftirfarandi: Yngri flokkur: 1. sæti - Erlen Inga Guðmundsdóttir með border terrier 2. sæti - Hrönn Valgeirsdóttir með amerískan cocker spaniel 3. sæti - Þórdís Jórunn Tryggvadóttir með labrador retriever 4. sæti - Aníta Helgadóttir með dvergschnauzer Eldri flokkur: 1. sæti - Berglind Gunnarsdóttir með siberian husky 2. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með pug 3. sæti - Vaka Víðisdóttir með lhasa apso 4. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með shih tzu Fullorðinsflokkur 18-34 ára: 1. sæti - Anna Dís Arnarsdóttir með pug 2. sæti - Valdís Vignisdóttir með afghan hound 3. sæti - Ester Hilmarsdóttir með poodle 4. sæti - Sigrún Guðlaugardóttir með labrador retriever Fullorðinsflokkur 35 ára +: 1. sæti - Svava Björk Ásgeirsdóttir með australian shepherd 2. sæti - Sigurgeir Þráinn Jónsson með tíbet spaniel 3. sæti - Anna Vigdís Gísladóttir með border terrier 4. sæti - Linda G. Lorange með tíbet spaniel Fleiri myndir frá deginum er hægt að finna HÉR!! Nú eftir úrslit septembersýningar HRFÍ myndaðist Nordic Winner liðið okkar sem mun keppa á Nordic Winner sem verður í Herning, Danmörku í nóvember næst komandi.
Í liðinu eru stigahæstu fjórir sýnendur í eldri flokkir en þær eru: Hafdís Jóna Þórarinsdóttir Vaka Víðisdóttir Berglind Gunnarsdóttir Elena Mist Theodórsdóttir Auður Sif Sigurgeirsdóttir mun fylgja þeim út sem þjálfari og vera þeim innan handar í keppninni. Við óskum stelpunum góðs gengis á Nordic Winner í nóvember! Keppni ungra sýnenda á septembersýningu HRFÍ fór fram föstudagskvöldið 2. september sl. Dómari að þessu sinni var Hilde Fredriksson frá Finlandi en 27 ungmenni tóku þátt.
Yngri flokkur: 1. sæti - Erlen Inga Guðmundsdóttir með border terrier - 40 stig 2. sæti - Hrönn Valgeirsdóttir með íslenskan fjárhund - 30 stig 3. sæti - Fanney Rún Guðmundsdóttir með tíbet spaniel - 20 stig 4. sæti - Lilja Ýr Árdal Alfreðsdóttir með ladrador - 10 stig Eldri flokkur: 1. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með enskan springer spaniel - 40 stig 2. sæti - Berglind Gunnarsdóttir með siberian husky - 30 stig 3. sæti - Vaka Víðisdóttir með australian shepherd - 20 stig 4. sæti - Elena Mist Theodórsdóttir með silky terrier - 10 stig Hægt er að smella á myndirnar til að sjá þær stærri en fleiri myndir er hægt að finna HÉR!! Dagur Ungmennadeildar HRFÍ verður haldinn hátíðlegur sunnudaginn 25. september nk. í Gæludýr.is á Korputorgi. Kaffisala verður á staðnum í umsjón deildarinnar en deildin verður því miður ekki með posa.
Keppt verður í flokkum barna, ungra sýnenda og eldri sýnenda og verða flokkarnir eftirfarandi: - Börn 3-5 ára - Börn 6-8 ára - Yngri flokkur ungra sýnenda 9-12 ára - Eldri flokkur ungra sýnenda 13-17 ára - Fullorðinsflokkur 18-34 ára - Fullorðinsflokkur 35 ára og eldri Þátttökugjald í barnaflokkum: 1.000.- kr. Þátttökugjald í ungum sýnendum og fullorðinsflokkum: 1.500.- kr. Þátttökuverðlaun verða veitt í öllum flokkum! Dómari í barnaflokkum verður Hafdís Jóna Þórarinsdóttir Dómari í yngri og eldri flokki verður Karen Ösp Guðbjartsdóttir Dómari í fullorðinsflokkunum verður Erna Sigríður Ómarsdóttir Vonumst til að sem flestir taki þátt í deginum með okkur en eins og við öll vitum þá er unga fólkið framtíð félagsins og vert er að nota hvert tækifæri til að auka áhuga þeirra á hundasportinu! Síðasti skráningardagur föstudagurinn 16. september!! Skráningargjald skal lagt inn á reikning nr. 515-26-270696 kt. 270696-2449 fyrir þann dag svo skráning sé gild. Vinsamlegast takið fram nafn þátttakanda í "skýringu" og sendið staðfestingu á greiðslu á netfangið [email protected] Uppfært 19.09.2016 kl.11:44 - Búið er að loka fyrir skráningu |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|