Stjórn Ungmennadeildar HRFÍ hefur ákveðið að aðeins fyrstu þrjár sýningar ársins munu telja til stiga þegar kemur að landsliði ungra sýnenda. Ástæðan fyrir því er að of stuttur tími er á milli nóvembersýningar HRFÍ sem fer fram 23.-24. nóvember og Nordic Winner sem fer fram í Stokkhólmi 15. desember 2019. Við viljum sjá til þess að þeir einstaklingar sem komast í landsliðið sem og þjálfari þess hafi nægan tíma til þess að undirbúa sig fyrir keppni.
Nóvembersýningin mun þó gilda til stiga fyrir stigahæsta sýnanda ársins. Þær sýningar sem telja til stiga fyrir Nordic Winner 2019 eru eftirfarandi: Norðurljósasýning HRFÍ í febrúar Júnísýning HRFÍ Ágústsýning HRFÍ Ef einhverjar spurningar vakna bendum við ykkur á að hafa samband við stjórn í gegnum netfang stjórnar [email protected] Tvöföld sumarsýning HRFÍ var haldin helgina 8.-9. júní. Ungir sýnendur fóru fram á laugardeginum og var dómari keppninnar Þórkatla Lunddal Friðriksdóttir, fyrrum ungur sýnandi. Alls voru 18 þátttakendur skráðir til leiks.
Úrslit voru eftirfarandi: Yngri flokkur: 1. sæti - Eyrún Eva Guðjónsdóttir með cavalier king charles spaniel 2. sæti - Birta Sól Hafsteinsdóttir með dverg schnauzer 3. sæti - Birna Rós Daníelsdóttir með franskan bulldog 4. sæti - Vilte Milleryte með tíbet terrier Eldri flokkur: 1. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með longhaired dachshund 2. sæti - Salka Björk Jónasdóttir með cavalier king charles spaniel 3. sæti - Lovísa Líf Helenudóttir með whippet 4. sæti - Fanney Rún Ólafsdóttir með havanese |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|