Ársfundur Ungmennadeildar HRFÍ var haldinn í kvöld, 23. febrúar, á skrifstofu HRFÍ. Vægast sagt slök mæting var á fundinn, því miður.
Ársskýrsla starfsársins 2020-2021 var lesin upp og samþykkt. Í stjórn voru laus tvö sæti til tveggja ára en Anna Dís og Stefanía Stella luku sínum tímabilum og gáfu ekki kost á sér aftur og þakkar deildin þeim fyrir vel unnin störf. Engin framboð voru í stjórn og skipa því einungis þrír aðilar stjórnina starfsárið 2021-2022, þær Erna Sigríður Ómarsdóttir, Rannveig Gauja Guðbjartsdóttir og Theodóra Róbertsdóttir. Í lok fundars voru stigahæstu sýnendur 2020 heiðraðir. Hægt er að skoða ársskýrslu stjórnar og fundargerð frá ársfundi hér. Ársfundur Ungmennadeildar HRFÍ verður haldinn þriðjudaginn 23. febrúar kl. 18 (í stað fimmtudagsins 18. febrúar eins og áður var auglýst) á skrifstofu Hundaræktarfélagsins, Síðumúla 15, 2. hæð.
Dagskrá fundarins: 1. Farið yfir ársskýrslu deildarinnar 2. Stjórnarkjör - kosið um tvö sæti til tveggja ára 3. Önnur mál 4. Heiðrun stigahæstu sýnenda ársins 2020 - 1. sæti í yngri flokki og 1.-4. sæti í eldri flokki Vegna þeirra fjöldatakmarkanna sem eru í gildi biðjum við þá sem hafa áhuga á að mæta á fundinn að skrá sig sem fyrst á netfangið [email protected]. Hlökkum til að sjá ykkur! FUNDINUM HEFUR VERIÐ FRESTAÐ TIL 23. FEBRÚAR KL. 18, SJÁ NÝJA FRÉTT Á HEIMASÍÐUNNI.
Ársfundur Ungmennadeildar HRFÍ verður haldinn fimmtudaginn 18. febrúar kl. 18 á skrifstofu Hundaræktarfélagsins, Síðumúla 15, 2. hæð. Dagskrá fundarins: 1. Farið yfir ársskýrslu deildarinnar 2. Stjórnarkjör - kosið um tvö sæti til tveggja ára 3. Önnur mál 4. Heiðrun stigahæstu sýnenda ársins 2020 - 1. sæti í yngri flokki og 1.-4. sæti í eldri flokki Vegna þeirra fjöldatakmarkanna sem eru í gildi biðjum við þá sem hafa áhuga á að mæta á fundinn að skrá sig sem fyrst á netfangið [email protected]. Hlökkum til að sjá ykkur! |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|