NKU samtökin hafa tekið þá ákvörðun að aflýsa Nordic Winner Junior Handling Championship sem halda átti á Nordic Winner sýningunni í Herning, Danmörku, í nóvember næst komandi. Þar af leiðandi fer landslið Íslands ekki út til Danmerkur að keppa. Engu að síður hefur stjórn Ungmennadeildar tekið þá ákvörðun að kynna liðið sem hefði farið út að keppa fyrir Íslands hönd á sýningu félagsins í nóvember ásamt því að kynna stigahæstu sýnendurnar sem fara út að keppa fyrir hönd Íslands á öðrum sýningum.
Erlen Inga er ung og efnileg hundakona sem hefur verið virk í hundaheiminum í mörg ár þrátt fyrir ungan aldur. Erlen keppti meðal annars í fyrsta hlýðniprófi ársins 180 með þeim frábæra árangri að ná 171 stigi af 180 mögulegum í bronsprófi með sheltie tíkina sína Ynju sem er aðeins 2ja ára gömul. Erlen og Ynja lönduðu þar með öðru sætinu. Erlen Inga er hinsvegar eftir okkar bestu vitund yngsti keppandi í hlýðniprófum félagsins til þessa og frábær fyrirmynd ungra hundaþjálfara! Við fengum Erlen til a svara nokkrum spurningum fyrir okkur og vonum að þið hafið gaman af! Hvenær byrjaðir þú í hundunum ? Ég myndi segja að ég hafi verið í hundunum alla mína ævi en mamma mín og pabbi voru byrjuð í þeim áður en ég fæddist. Ég byrjaði að taka meira þátt sjálf utan heimilisins þegar ég varð aðeins eldri, tók td. þátt í Börn og hundar hjá Smáhundadeildinni 2012 þegar ég var á áttunda ári og fór svo í unga sýnendur þegar ég var á tíunda ári. Síðan þá hef ég verið með pásum í ungum sýnendum en sýnt á öllum hundasýningum frá því ég hafði aldur til. Frá því ég var 11 ára hef ég verið að þjálfa hundana á heimilinu af og til með mömmu. Rétt eftir fermingu fékk ég hana Ylfu sem ég hef alið upp sjálf og þjálfað sjálf að mestu leiti. Hvað finnst þér skemmtilegast við það að eiga hunda? Skemmtilegast finnst mér félgsskapurinn af hundinum og líka félagsskapurinn af fólki sem hundalífið býður upp á. Ylfa er alltaf til staðar fyrir mig, hún hjálpar mér að hreyfa mig meira sem er gott fyrir mig en ég er með vefjagigt og á misgóða daga og þá er gott að hafa hana. Hvernig hund/hunda áttu? Ég á sjálf hana Ylfu 2ja ára en hún er Shetland Sheepdog og heitir Islands Sheltie Everdeen, mamma og pabbi eru skráð fyrir henni þangað til ég verð 18 ára en svo eigum við fjölskyldan góðan hóp af labradorum. Hvenær kviknaði áhugi þinn á hlýðni þjálfun? Ég hef af og til verið að hjálpa hjálpa mömmu með labradorana okkar í þjálfun en þegar ég fékk Ylfu þá kviknaði áhuginn meira en Ylfa fótbrotnaði þegar hún var ca. 5 mánaða og var í nokkra mánuði í gipsi. Þórhildur Bjartmarz hundaþjálfari hjálpaði mér og kenndi mér að gera nokkrar æfingar sem hún gat gert í gipsinu sem var alveg frábært og vel þegið. Eftir að hún losnaði úr gipsinu þá æfði ég hana öðru hvoru, ekkkert svo markvist en Þórhildur vakti athygli mína aftur að fara á fullt þegar Covid-samgöngubannið var sett á. Hún hvatti okkur og fleiri áfram á síðu sem hún er með og í kjölfarið skráðum við okkur svo í bronspróf og æfðum vel. Bronsprófið gekk vonum framar, fengum 171 stig af 180 stigum mögulegum og erum ótrúlega glaðar með það. Með hvaða hund kepptiru í brons prófinu og hvernig myndirðu lýsa honum? Ég tók hundinn minn hana Ylfu sem ég hef minnst á hér á undan, hún er vinnuhundur og elskar að æfa og vinna með mér. Hún er mjög fljót að læra æfingarnar svona oftast. Hún er tryggur hundur og húsbóndaholl, hún er orkumikil og elskar að leika. Hún vill líka kúra mikið með mér upp í rúmi. Hvað æfið þið oft saman? Ég reyni að fara með hana í göngutúra daglega þar sem ég tek æfingar með, það fer eftir dagsforminu á okkur báðum hversu margar og miklar æfingar við tökum. Stundum ef ég er mjög verkjuð labbar mamma með hana og tekur þá stundum æfingar líka til að hjálpa okkur. Við leigjum svo sal einu sinni í viku með frænku okkar þar sem við tökum mjög góðar æfingar. Hvað finnst þér mikilvægast að æfa fyrir hlýðni? Best er að læra og æfa vel allar æfingarnar sem þarf að gera í prófinu en það er misjafnt eftir hversu langt maður er kominn í prófunum hvaða æfingar eru og hvernig þær eru útfærðar en auðvitað er best að æfa þannig að þú og hundurinn hafið bæði gaman að því. Stundarðu einhver fleiri sport með hundunum þínum? Ég hef prófað rallý-hlýðni, hundafimi og svo sýni ég hundana mína með mömmu. Mér finnst þetta allt mjög gaman og vonast til að komast á fleiri rallý-hlýðniæfingar og að það verði haldið námskeið sem allra fyrst í hundafimi svo við getum haldið áfram þar. Áttu einhver góð ráð til að hvetja fleiri unga þjálfara áfram? Passaðu þig að hafa gaman fyrir þig og hundinn þinn, ekki gera æfingar ef hvorugt ykkar eruð vel upplögð. Ef þú þarft hjálp, ekki vera feiminn að fá hjálp, það er betra en að gera vitleysu í upphafi. Ég fæ hjálp og finnst það gott. Ég hefði ekki klárað prófið án þessarar hjálpar og er þakklát fyrir hana. Passa líka að æfa oftar í stuttan tíma og hætta þegar vel gengur og allir eru glaðir. Takk fyrir þetta Erlen Inga og okkur hlakkar til að fylgjast með ykkur áfram! |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|