Bandaríski atvinnusýnandinn Tammie Sommerson-Wilxox verður dómari á tvöfaldri útisýningu HRFÍ í ágúst. Tammie hefur sýnt og snyrt hunda úr öllum tegundahópum í yfir 40 ár með góðum árangri. Hún hefur einnig mikinn áhuga á ungmennastarfi og góða reynslu af ungum sýnendum. Tammie ólst upp með þýskum fjárhundum en ræktar núna papillon og pembroke welsh corgi ásamt eiginmanni sínum, John Wilcox. Þau vinna bæði sem AKC sýnendur ásamt því að eiga og reka hundahótelið og snyrtistofuna Win-Star Bed & Biscuit.
Við minnum ykkur á að síðasti skráningardagur á lægri gjaldskrá er næstkomandi föstudag, 13. júlí. Við vonum að sem flestir ungir sýnendur skrái sig og taki þátt. Skráning fer fram á skrifstofu HRFÍ eða í síma 588-5255. Skrifstofan er opin virka daga frá klukkan 10-15. Skráningarfresti á seinni gjaldskrá lýkur 27. júlí. Að sama skapi minnum við keppendur í eldri flokki á að einungis þrjár sýningar gilda til stiga fyrir landslið Nordic Winner. Sjá tilkynningu HÉR Sumarsýning HRFÍ var haldin 8.-10. júní síðastliðinn. Keppni ungra sýnenda fór fram á föstudagskvöldinu. Dómari að þessu sinni var Elín Rós Hauksdóttir og voru 21 ungmenni skráð til leiks. Yngri flokkur: 1. sæti - Freyja Guðmundsdóttir með tíbet spaníel 2. sæti - Signý Lind Júlíusdóttir með franskan bulldog 3. sæti - Hrönn Valgeirsdóttir með ástralskan fjárhund 4. sæti - Tanja Björk Adamsdóttir með tíbet spaníel Eldri flokkur: 1. sæti - Lovísa Helenudóttir með whippet 2. sæti - Vaka Víðisdóttir með siberian husky 3. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með pug 4. sæti - Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir með strýhærðan vorsteh Hægt er að sjá myndir frá keppninni með því að smella HÉR Við óskum ykkur öllum innilega til hamingju með árangurinn! |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|