Í ár mun stigatalningin breytast örlítið þar sem Nordic Winner sýningin í Noregi verður haldin helgina 14.-16. nóvember sem er helgin eftir nóvembersýningu HRFÍ, sem er 8.-9. nóvember, og því þarf að ákvarða landsliðið fyrir nóvembersýninguna. Í ár munu því fyrstu þrjár sýningar HRFÍ gilda til stiga inn í landsliðið, þ.e. efstu fjórir í eldri flokki eftir septembersýningu HRFÍ munu mynda lið Íslands á Nordic Winner 2014. Allar fjórar sýningar HRFÍ munu hins vegar ákvarða stigahæstu sýnendurna yfir árið og hverjir munu verða fulltrúar á Crufts, heimssýningunni og Evrópusýningunni. Stigatalning í yngri flokki mun haldast óbreytt.
-Stjórn Unglingadeildar HRFÍ Hundaræktarfélag Íslands stóð fyrir tvöfaldri útisýningu nú um helgina og voru ungir sýnendur haldnir á fimmtudeginum fyrir, 19. júní, í Víðidal. Dómari að þessu sinni var Pernilla Lindström frá Svíþjóð.
Yngri flokkur: 1. sæti - Stefanía Stella Baldursdóttir með Pug - 40 stig 2. sæti - Vaka Viðisdóttir með Siberian husky - 30 stig 3. sæti - Glódís Rún Sigurðardóttir með Australian shepherd - 20 stig 4. sæti - Elena Mist Theodórsdóttir með Shih tzu - 10 stig Eldri flokkur: 1. sæti - Helga Þöll Guðjónsdóttir með snögghærðan Vorsteh - 40 stig 2. sæti - Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með Shetland sheepdog - 30 stig 3. sæti - Hilda Björk Friðriksdóttir með Miniature schnauzer - 20 stig 4. sæti - Margrét Hauksdóttir með Afghan hound - 10 stig Þökkum Ágústi Ágústsyni fyrir þessar myndir af keppninni! Vekjum athygli á að sýningarþjalfun Unglingadeildar kl. 19-21 i kvöld, 4. júní, verður því miður AFLÝST vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Hins vegar VERÐUR þjálfun UNGRA SYNENDA kl 18 á dagskrá á Víðidalsplaninu við reiðhöllina
Biðjumst afsökunar á þessu! Æfing verður samt 11. júní! |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|