Vegna fjölda fyrirspurna um næsta námskeið, höfum við skipulagt námskeið í ágúst fyrir unga sýnendur!!
Ungmennadeild ætlar að bjóða uppá námskeið fyrir unga sýnendur í ágúst, námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Námskeiðið verður haldið eftirfarandi daga, nákvæmari tímasetning kemur: Miðvikudagur 4. ágúst Mánudaginn 9. ágúst Miðvikudaginn 11. ágúst Mánudaginn 16. ágúst Þjálfarar námskeiðsins verða Rannveig Gauja Guðbjartsdóttir og Erna Sigríður Ómarsdóttir, sem eru báðar fyrrum ungir sýnendur. Námskeiðsverðið er 8.000 kr. og innifalið í því eru þessi fjögur skipti ásamt veglegum fræðslupakka og heimaverkefnum sem krakkarnir fá á námskeiðinu. Taka skal fram að allur ágóði af námskeiðinu rennur beint til deildarinnar og er því fjáröflun fyrir starf deildarinnar. Staðsetning námskeiðsins verður auglýst þegar nær dregur. Við hverjum alla unga sýnendur 9-17 ára (ártalið gildir) til að skrá sig á námskeiðið! Millifæra skal námskeiðsgjaldið á reikning deildarinnar hjá HRFÍ: Reikningur 515-26-680481, kt. 680481-0249, setja nafn þátttakanda í skýringu og senda kvittun á [email protected]! ATH: Skráning telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist.t. Uppfært 1. ágúst: Búið er að loka fyrir skráningu |
StjórnHilda Björk - formaður Archives
March 2024
Categories
All
|